Heimir - 01.10.1908, Side 4

Heimir - 01.10.1908, Side 4
;6 HEIMIR Um leiö og þaö er gæfa að vera inikilmenni þá er þaö líka óhamingja stærsta. Mikilmenniö leggur aldrei hendur í skaut t>g gjörist áhorfandi, þegar um mannfélagsmál, sönn og virkileg er að ræöa. Lífsspeki hans er ekki sú, aö láta aöra berjast baráttunni og bera þungann og erviöiö, en eftir á smokra sér svo einhvernvegin aö, þegar takinarkinu er náö, og njóta þá í bróðerni meö öörum árangursins, hvort heldur hann er and- legt eöa veraldlegt frelsi og mannréttindi, er þannig hefir feng- ist. Mikilmennin ganga fram í baráttuna, leggja fram skoöan- ir sínar og starf. Þau sitja aldrei hjá þögul og hljóö og vilja- deig. En þess vegna lenda þeir mer.n er svo eru, allajafnast inn á opinberar slóöir, og upp frá því skoðar allur almenningur þá sem sína eign, peisónu þeirra, manngildi og líf. Og er þar í innifalin ógæfan. Þá er álitið að hver rnegi taka þá og vega kosti þeirra og bresti, jafnvel búa til úr þeim goö eða ára, látast lesa þá ofan í kjölinn og smíöa þeim hugrenningar, hvatir,eigin- legleika og innræti. En sú smíö vill oft misjafnlega takast og oft ekki til búningsbóta fyrir persónu mannsins, aö vér ekki töl- um um þegar úr honuin er gjöröur: níðingur, svikari, moröingi, þjófur og lygari, og svo áfram upp allar trcppur glæpalýösins, er fyllir dýblissur og myrkvastofur allra siðaðra landa. Sú veröur jafnast raunin á, að þaö er sannkvæöi orö skálds- ins í eftirmælunum fögru, „Djúp aö kanna mikilmenna, megnar aldrei fjöldinn þegna." Þess vegna er mér líka vandi á höndum í kvöld, því eg er einn af „fjölda þegna". Eg á ekki von á, að mér takist aö sýna nokkra líkingu þessa þjóðskörungs vors, né gjöra mynd hans glögga, en þær fáu útlínur er eg drægi vildi eg helst að mætti veröa sannar.— Ekki oflof, ekki oflast. Aö líkamslýsingu veröur þó hvorki mynd hans sönn né ósönn. Eg ætla ekki að lýsa ásýndum mannsins, eg hefi hann aldrei séö. A andleg einkenni hans og þýðingu fyrir þjóölíf vort, vildi eg benda með örfáum orðum— og mest hans eigin orðum. Hannes Þóröur Hafsteinn, er fæddur árið 1861, þann 4. Des., á Akureyri viö Eyjafjörö. Var faöir hans Pétur amtm.

x

Heimir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.