Heimir - 01.03.1914, Side 6

Heimir - 01.03.1914, Side 6
126 HEIMIR. Skrifari gaf munnlega skýrslu viðvíkjandi útgáfu handbókar; kvaðst hann ásamt séra Rögnv. Péturssyni vera byrjaður á að þýða hina nýju liandbók Ameríska Unitarafélagsins fyrir presta á íslenzk- u, en sökum anna síðustu vikurnar hefði verið ómögulegt að ljúka við það verk fyrir þingið. Ó. Pétursson lagði til að verki þessu væri haldið áfram og það falið framkvæmdarnefnd félagsins til eftirlits. Tillagan var studd af J. Halldórssyni. B. B. Olson benti á, hvort ekki mundi tiltækilegt, að prenta nokkra sálma í þesskonar bók, sem sérstaklega gætu komið að notum við ýms tækifæri. P. Bjarna- son mintist á það sama og svo notkun bókarinnar yfirleitt- Forseti sagðist álíta ómögulegt að slengja saman sálmabók og handbók. Sömu skoðun lét séra A. E. Kristjánsson í ljós, sem sagðist áiíta að þörf væri á handbókinni en engu síður þörf á sálmabók. Tillagan var samþykt. Eorseti gaf munnlega skýrslu fyrir hönd nefndar þeirrar, er haft hefir gamalmennahælismálið með höndum. Sagði hann að nefndirnar frá lútherska kyrkjufélaginu, Tjaldbúðarsöfnuði og þessu félagi hefðu nokkuð rætt um málið síðan á síðasta þingi, og hefði komið í ijós við þær umræður, að nefnd lútherska kyrkjufélagsins hefði nokkuð viljað slaka til með hlutföllin milli flokkanna í stjórn hins fyrirhugaða hælis, en þó ekki viljað viðurkenna alla flokka, sem hlut ættu að máli, alveg jafna. Um mál þetta töluðu, auk for- seta: skrifari, P. Bjarnason, og séra A. E. Kristjánsson. P. Bjarnason lagði til og J. Straumfjörð studdi, að sömu nefnd væri falið málið til meðferðar framvegis. Tillagan var samþykt- Björn Pétursson las og lagði fram eftirfylgjandi skýrslu frá séra Rögnv. Péturssyni viðvíkjandi söfnun bóka og liandrita snert- andi sögu Unitarahreyfingarinnar meðal Islendinga, sem honum var falið á hendur á síðasta þingi: 'Til forseta hins Unitariska Kyrkjufélags Vestur Islendinga: Á hinu sjöunda þingi kyrkjufélags vors, er haldið var í Winni- peg 18-20 apríl 1913, var mér undirrituðum falið á hendur að gangast lyrir að safna skjölum og skírteinum, safnaðarbókum, ritum, prent- uðum og óprentuðum, er að einhverju leyti snerti sögu hinnar úní- tarisku trúarhreyfingar hér vestra. Um mál þctta skrifaði eg ítarlega áskorun í 2 blaði 9 árgangs Heimis. Undirtektir hafa verið smáar. Söfnuðir, er eiga gamlar

x

Heimir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.