Heimir - 01.03.1914, Síða 14
134
HEIMIR.
Útgáfunefnd Heimis—Séra Rögnv- Pétursson; ólafur Péturs-
son; Séra Guðm. Árnason.
Yirðingarfylst,
Níels E. Hallsson
G. Jörundsson
Jónas Halldórsson
B. B. Olson lagði til og P. Bjarnason studdi að nefndarálitið
væri samþykt. Var þar næst gengið til atkvæða og nefndarálitið
samþykt í einu hljóði.
í>á var gengið til atkvæða um tillöguna, sem frestað hafði verið
þar til nefndarálit þetta væri fram komið, og var samþykt með átta
atkvæðum gegn sex.
B. B. Olson bauð kyrkjufélaginu fyrir hönd Gimli-safnaðarins
að halda næsta þing sitt á Gimli kringum 3 sunnudag í júní 1915.
B. Pétursson lagði til og P- Bjarnason studdi, að boðinu sé tekið
með þökkum. Samþykt.
P. Bjarnason lagði til að fundi væri frestað til kl. 2 næsta dag.
Stutt og samþykt.
Klukkan hálf fjögur fór fram guðsþjónusta í Goodtemplara-
húsinu á Lundar, séra Aibert E. Kristjánsson las biblíukaflana, en
séra Guðm. Árnason fiutti ræðuna. Ejöldi manns var viðstaddur.
Mánudaginn 22 júní kl. 2 e.h. var haldinn trúmálafundur- Séra
A. E. Kristjánsson las nokkurn hluta 21 kap. Opinberunarbókar-
innar og sálmurinn nr. 427 í sálmabókinni var sunginn.
Umræðuefnið var framtíðarkyrkjan, og hóf hr. Skafti B. Brynj-
ólfsson umræður um það. Plutti hann snjalt erindi og benti á,
hvernig kyrkjan á liðnum tímum hefði orðið að breyta stefnu sinni
og afstöðu samkvæmt kröfum vísinda og þekkingar. Stefnubreyt-
ingin, sagði hann, að héldi áfram, unz kyrkjan í heild sinni hefði
hallast að þeirri frjálsiyndisstefnu, sem Únftarakyrkjan hefði lengi
haldið fram og á eftir henni ýmsir menn í öðrum kyrkjuflokkum.
Á cftir málshefjanda töluðu: Halldór Jónsson, guðfræðisnemi,
sem talaði frá sjónarmiði lúthersku kyrkjunnar, séra Guðm. Árnason
og séra A- E. Kristjánsson, og urðu umræður all-langar. Aðsókn að
fundinum var sérlega góð.