Heimir - 01.03.1914, Page 27
HEIMIR.
147
En hvað er um afieiðingarnar.? Ivostnaðinn, mannfallið, eyði-
legginguna.? Það alt verður meira en unt er að gjöra sér grein fyrir.
Hversu skamt er ekki liin verulega siðmenning enn])á á veg kominn
að málum skuli ekki enn verða miðlað án slíks kostnaðar, tjóns og
dauða. Ekkert stærra meningarspor yrði nú stígið en það að allar
mentaðar þjóðir lærðu að taka liöndum saman með þeim ásetningi
að “láta stríðum linna til jarðarinnar enda.”
G. Á.
Uppruni nafnsins Unitar.
Að mestu eftir grein eftir W. C. Gannett í “The Christian Register”
1 ungverskri kyrkjusögu, eftir kalvinskan guðfræðing, Pétur
Bod að nafni, sem var gefin út órið 1756, er getið um lög, sem þingið
1 Transylvaníu samdi árin 1557, 1563 og 1568, þar sem ákveðið er, að
þeir sem aðhyllist mótmælendtrú skuli njóta allra sömu réttinda og
kaþólskir menn- Meðal annars stendur þar:—“Auk þess mynduðu
trúflokkarnir ýmsu samband sín á milli, til þess að þeir ekki af
trúarbragðarlegum ástæðum ónáðuðu og ofsæktu hverir aðra með
innbyrðis hatri. Yegna þessa sambands voru þeir nefndir uniti eða
unitarii. Nafnið hélzt við þá sem játuðu að faðirinn einn væri liinn
eilífi, sanni eini (guð), og þeir tóku það upp af frjálsum vilja; þar
sem þeir er héldu fram þremur persónum í einni veru, voru aftur á
móti kallaðir “trinitarii”. Á þessum orðum hafa margir bygt þá
skoðun að nafnið tJnitarar liafi upprunalega táknað sameiningu
trúflokka, sem ekki liöfðu sömu trúarskoðanir, í því skyni að forð-
ast ofsóknir og ónæði sín á milli, sem var algengt milli mótmælenda-
flokkanna og kaþólsku kyrkjunnar á 16. öldinni. Þessu er t. d.
haldið fram í sögu Únítara kyrkjunnar eftir prof. Allen og margir
fleiri meðal amerískra Únitara liafa aðhylst þessa skoðun. En síð-
ustu rannsóknir liafa leitt í ijós sumt, sem hendir ó, að þessi skoðun
sé röng, og að nafnið hafi frá fyrstu þýtt trú á einn guð í mótsetn-
ingu við trú ó þríeinan guð.