Muninn - 01.03.1978, Blaðsíða 4
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ, HÆTTULEGASTI AFTURHALDSFLOKKUR Á
ÍSLANDI.
Alþýðubandalagið býr sig nú af kappi undir komandi kosningar.
F.l okkurinn getur átt von á því að auka við fylgi sitt, því óánægja
ineó núverandi ríkisstjórn er mikil. Alþýðubandalagið hefur haldið
uppi harðri hríð gegn stjórninni og á auðvelt með að gera lífið
erfitt fyrir hana vegna þess að það hefur undirtökin í verkalýðs-
hreyfingunni, og beitir henni óspart fyrir sig. Lausn Alþýðubanda-
lagsins á vandamálum þjóðarinnar er sú að fólk eig.i að gefa því at-
kvæði sitt í komandi kosningum, þá muni Alþýðubandalagið kannski
kcmast í ríkisstjórn og þá sé unnt að þoka landinu í átt til sósíal
isma.
Islendingar hafa heyrt lýðskram svipað þessu í fjölda ára.
AlþýðubandaJagið og forveri þess, SÓsíalistaflokkurinn, hafa komist
í stjórn þrisvar sinnum frá stríðslokum. Höfuðröksemdirnar fyrir
þátttöku í stjórnum þessum hafa verið eftirfarandi:
a) Nauðsvnlegt væri að koma lagi á rikisbúskapinn og atvinnuvegi
þjóðarinnar eftir að íhaldið væri búið að sigla öllu í strand.
b) Verkalýðshreyfingin myndi fá meiri áhrif á stjórn landsins og
kjör alþýðu batna við stjórnarþátttöku AB.
c) 'J'vær síðari stjórnirnar sem AB/Sós. hafa tekið þátt i hafa haft
á stefnuskrá sinni að reka herinn úr landi. Þetta mál hefur þó
vikið fyrir öðru máli, sem hefur haft "algjöran forgang", en það er
d) Landhelgismálið. Það hefur verið ein af röksemdunum fyrir
vinstri stjórnunum að nauðsyn væri að færa út landhelgina.
Árangrinum af þessum stjórnarþáttökum má lýsa eftir sömu röð
þannig:
a) íslenska auðvaldskerfið hefur ýmis sérkenni. Eitt það helsta
er hin mikla þátttaka ríkisins í atvinnulífi. Rikið stjórnar í
raun og veru atvinnurekstri í landinu. Þetta er íslensku auðvaldi
nauðsynlegt til að verjast áhrifum og ágangi erlends auðvalds,
sökum þess hve íslenskt auðvald er veikt miðað við önnur nálæg
auðvaldsríki. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki getað sinnt upp-
byggingu ríkisins nægilega vel vegna þess að I flokknum eru sterk
öfl, sem ekki vilja sterkt ríkisvald, aðallega heildsalar og smáat-
vinnurekendur. Þá hefur Alþúðubandalagið komið og I samræmi við
yfirlýsta stefnu aukið og styrkt þennan mikla ríkisrekstur og
þannig hlaðið undir og styrkt stöðu íslensks auðvalds. Aukinn
ríkisrekstur táknar hjá Alþýðubndalagsmönnum það, að ísland 'fær-
ist nær sósíalismanum". Alþýðubandalagið hefur í þessum aðgerðum
alltaf haft náin samskipti og samstarf við öflugasta auðhring á
4