Muninn - 01.03.1978, Qupperneq 10
VORT GÓÐA STARF.
Það st.yttist í prófin og feikningsskil vetrarins eru skammt
mdan. Veturinn er nú liðinn og leiðinlegt tíðarfar er sem betur
fer að baki. Þessi vetur er búinn að vera fljótur að líða og ber
[>ar fyrst að þakka siðaskiptunum 7. febrúar 1978 þegar nýir straum-
ar og nýir menn tóku við skólafélaginu.
Þessar línur eru ritaðar hér til þess að óska okkur í stjórn
félagsins til hamingju með vel unnið starf, því það verða víst ekki
aðrir til þess.
Þann 7. maí '78 átti stjórn Hugins þriggja mánaða starfsafmæli.
Heldur var lítið um dýrðir, engin fallbyssuskot, engir fánar blöktu
okkur til dýrðar og lítið var um tertubakstur.
Ekki er það ætlunin að rita hér minningargrein, við erum þó
alltént á lífi, enn sem komið er. Eins og áður er getió tók nú-
verandi stjórn tii starfa 7. febr. s.l. Fráfarandi stjórn eftirlét
okkur blómlegt bú og óhreina félagsmálakompu. Fyrst i staó höfðum
við áhyggjur af þvi að við kæmum engu i verk nema að taka til i
félagsmálakompunni. En ekki leið á löngu þar til verkin fóru að
hlaðast upp hvert af öðru. Listavikan var að sjálfsögðu hápunkt-
urinn* en ýmislegt annað hefur þó borið á góma i vetur. Málfundir
og skól.afundir hafa verið óvenju vel sóttir i vetur. Sérstaka
athygli vekur almennari þátttaka kennara en oft áður. (Þaó eru
fleiri farnir að mæta en Sverrir Páll sem betur fer).
Það sem þó gladdi okkur mest var hve margir mættu á skóla-
fundinn þann 28. feb. s.l. sem haldinn var um kjaramál og hvort
við menntskælingar skyldum taka þátt i verkfalli ASl, BSRB, BHM
og fleiri aðila. Að visu höfum við fengið ákúrur frá ungum hægri-
mönnum sem gagnrýndu réttilega val frummælenda á fundinum. Til
áréttingar skal það tekið fram að mjög treglega hefur gengið að
fá unga hægrimenn i ræðustól i vetur sem undanfarin ár og svo
notuð séu orð "guðföður" þeirra, Lárusar Blöndal, þá sagðist hann
ekki fara að berjast einn við þessa kommúnista, þannig er nú á-
standið þar. Einnig skal þeim bent á að á íslandi er frjáls skoð-
anamyndun og á málfundum og skólafundum er púltið vel til þess
fall.ið að koma sinum skoðunum á framfæri.
Hin ýmsu félög Hugins hafa starfað með miklum krafti nú sem
endranær. Stærsta sérfélagið innan Hugins, ÍMA, hefur m.a. sigrað
i framlialdsskólakeppninni i blaki karla og kvenna og knattspyrnu-
Iið skólans i framhaldsskólamótinu i knattspyrnu karla. Að lokum
10