Muninn - 01.03.1978, Síða 11
má ekki gleyma stórsigri M.A. yfir Menntaskólanum á ísafirði, en
þar burstuðum við nemendur M.í. í flestum greinum.
L.M.A. hefur sömuleiðis starfað af miklum krafti. 1. des. dag-
skráin var frumsamin að þessu sinni og að mestu í höndum L.M.A.
2. verkefni félagsins var flutningur á íslenska leikritinu "Hlaup-
vídd sex" eftir Sigurð Pálsson. Sýningar á leikritinu gengu mjög
vel, urðu alls sex á Akureyri, en að auki var farið i ferðalag til
Siglufjarðar og Skagafjarðar. L.M.A. hefur aldrei komið eins vel
út fjárhagslega og ber þar að þakka formanni félagsins, Hermanni
Arasyni, fyrir mjög vel unnið starf.
NÚ fara þeir tímar í hönd að við förum að nota góða veðrið og
við það lamast félagslífið að sjálfsögðu. Að mati stjórnar Hugins
hefur þetta gengið allbærilega og það er von okkar að við höfum
náð að reka þær skyldur sem á herðar okkar voru upphaflega bornar.
Viljum við því þakka öllum þeim sem lagt hafa hönd á plóginn og
gert það að verkum að félagslif í M.A. hefur blómstrað í vetur.
ÞÓ ekki sé rétt að taka einhverja sérstaka út úr þeim hópi eiga þó
ýmsir þeirra það skilið: Formaður L.M.A. Hermann Arason, Skúli
Skúlason fyrir svo margþætt félagsstörf að of langt mál yrði upp
að telja og formaður ÍMA, Karl Ólafsson, fyrir frábæra samvinnu við
stjórn skólafélagsins. Þessir þrír hafa skarað fram úr að öðrum
ólöstuðum.
Á vegum Hugins komu Grænjaxlar í heimsókn til okkar í aprílmán-
uði og sýndu 6 sinnum fyrir fullu húsi. Bókmenntafélagið hélt
sína 4. kynningu á vetrinum 27. apríl og gestur þeirra var Pétur
Gunnarsson rithöfundur. Alls mættu 160-170 manns og skemmtu menn
sér konunglega. Fyrirhugað hafði verið að Þursaflokkurinn kæmi
og héldi tónleika í Menntaskólanum, en því miður fórst það fyrir
vegna þátttöku þeirra á Stranglers hljómleikunum, sem síðan varð
engin vegna samningsbrots.
Von okkar er sú að strax á næsta vetri getum við tekið upp
þráðinn að nýju og haldið áfram að efla félagslífið. Það er
ýmislegt sem við höfum vanrækt og vafalaust eru allir ekki ánægðir,
því það hlýtur að vera ógerningur að gera öllum þeim nemendum sem
hér eru til hæfis. Að lokum óskum við nemendum M.A. alls hins
besta í komandi prófum og þökkum enn á ný fyrir gott og ánægjulegt
samstarf.
Arnar Björnsson,
formaður Hugins.