Muninn

Ukioqatigiit

Muninn - 01.03.1978, Qupperneq 16

Muninn - 01.03.1978, Qupperneq 16
VAhGREINAR Á síðastliðnu hausti tók tii starfa nefnd, á vegum skólastj- órnar, er gera átti tillögur ura hugsanlegar breytingar á valgreina- kerfinu. Nefndin, sem skipuð var þrem fulltrúum nemenda og tveim fulltrmm kennara ásamt konrektor, skilaði áliti um mánaðamótin febrúar/mars. Skólastjórn sendi álitið þá hagsmunaráði og deild- arstjóra- og kennarafundi til umfjöllunar. Er þessir aðilar höfðu skilað áliti fjallaði hún um það og samþykkti eftirfarandi. I) Valgreinar hjá hverjum nemanda skulu að jafnaði vera fimm, hver þeirra þrjár námseiningar. Heimilt er að viðurkenna nám í sérskóla sem valgrein, allt að 12 einingum. Nemandi skal velja eina valgrein í fjórða bekk, og tvær í fimmta og sjötta bekk. í sjötta bekk skal önnur valgreinin vera sjálf- staett námsverkefni. II) Nemendur velja greinar án annarra takmarkana en þeirra sem fel- ast í sjálfu tilboði á valgreinum hverju sinni. Hverjum nem- anda í sjötta bekk skal þó skylt að taka sérstakt námsverk- efni og skrifa um það ritgerð í samráði við kennara. Gefa skal tvær einkunnir fyrir þetta verkefni. Er önnur gefin fyrir heimildasöfnun, meðferð heimilda og fræðilegt gildi, og er það einkunn í valgrein. Hina einkunnina skal gefa sér- staklega fyrir málfar og stíl ritgerðarinnar. Skal sú eink- unn vera einkunn nemandans í íslenskum stíl á haustönn í 6. bekk. III) Leitast skal við að bjóða valgreinar þannig að tvíþættu mark- miði með valgreinum sé náð. Nemendum sé eftir föngum gefinn kostur á að nota sér valfrelsió jafnt til að 1) efla kunn- áttu sína í kjarna- og kjörsviðsgreinum og 2) til að auka al- menna menntun sína með því að leggja stund á nýjar greinar. Til að þessum markmiðum verði náð, skal leitast við að bjóða greinar úr þremur meginflokkum: STARFSNÁMI, SÉRNÁMI (tengdu kjörsviði) og ALMENNU NÁMI. IV) Allar valgreinar í skólanum skulu metnar til einkunnar eins og aðrar greinar, sem kenndar eru. Sbr. þó VI. grein. Skóla- stjórn bendir á að sömu kröfur um þekkingu og færni eru gerð- ar .í valgreinum og öðrum greinum og festa og skipulag skal ríkja þar ekki síður en í öðru námi og kennslu í skólanum. V) Skólastjórn telur eðlilegt að deildarstjórar hafi með hönd- um að ákveóa námsefni í valgreinum og fylgjast með kennslu Frh. bls. 36. 16

x

Muninn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.