Muninn - 01.03.1978, Page 24
N’AM ’l MENNTASK’OLA
1 byrjun febrúar var haldinn í setustofu heimavistar fjöl-
mennur málfundur þar sem bæði kennarar og nemendur skiptust á
skoðunum um tilhögun kennslu og prófa í M.A., og raunar málefni
menntaskóla yfirleitt. Einn frummælenda var Kristján Kristjáns-
son 5.F. Muninn fór þess á leit við Kristján að fá að birta inn-
gangsávarp hans og varð hann góðfúslega við þeirri beiðni.
Það liggur nokkuð ljóst fyrir að engum grettistökum verð-
ur lyft hér í kvöld þótt skeggrætt verði um tilhögun náms í
menntaskóla. Skiptir þá ekki máli hversu gáfulegar niðurstöður
okkar kunna að verða eða hve miklu mannviti verður úthellt.
Ástæðan er einfaldlega sú að menntaskólar eru dauðadæmdar
stöfnanir, nátttröll sem óvægið ljós menntamálaráðuneytisins
rnun brátt breyta í kaldan stein.
/ Þessir skólar standa á gömlum merg en hafa þó verið í stöð-
ugri þróun. SÚ framvinda hefur samt verið önnur og hægari en
hjá menntastofnunum á lægri skólastigum. Tengsl menntaskólanna
við fræðsluyfirvöld hafa lengst af verið mjög veik og breytingar
í skólunum að mestu leyti orðið til innan frá, fyrir tilstilli
s.kólastjóra, kennara eða kannski stundum nemenda. Þetta stingur
í stúf við barna- og gagnfræðaskólana sem hafa verið leikvangur
forkólfanna í menntamálaráðuneytinu en nemendurnir tilraunadýr
og leiksoppar þeirra. Þetta sjálfræði menntaskólanna hefur gert
þá um margt innbyrðis ólíka í tímans rás en það er skipulags-
meisturum syðra skiljanlega mikill þyrnir í augum. Á því verð-
ur líka ráðin full bót í nýja, staðlaða framhaldsskólanum.
Ef til vill erum við því hér, nemendur góðir, í alveg ein-
stakri aðstöðu og það þótt við sverjum okkur æ meira í ætt við
landa okkar, síðasta geirfuglinn. Enn um sinn getum við í fullri
alvöru rætt um hvað við vildum færa til betri vegar í þessum skóla,
vitandi að tillit verður tekið til tillagna okkar i stjórn skól-
ans þar sem við eigum fulltrúa. Við höfum enn ekki verið hneppt
í fjötra skrifræðis og skipulagningar við Hverfisgötu.
En er þá eitthvað sem betur mætti fara i skólanum okkar?
Er einhverju að breyta? Til þess að svara svo viðamikilli spurn-
ingu er nauðsynlegt að íhuga stöðu menntaskólanna innan fræðslu-
24