Muninn - 01.03.1978, Side 27
HT: Áhugamannafélög.' Sjáðu nú til, leikhús er ekki áhuga- og at-
vinnumennska, því að leikhús er þannig fyrirbrigði að það
skiptir ákaflega litlu máli hvort þú hefur lært eitthvað eða
ekki svo framarlega sem þú gerir hlutina vel.
Aftur á móti er vont að vera atvinnumaður og vinna með heil-
an hóp af fólki sem kann ekki neitt, og maður nær ekki fram
öllu sem maður vildi.
En það hvernig þau standa miðað við önnur leikfélög get ég
bara ekki dæmt um, því það er ekki hægt að vera þáttakandi í
sýningu og ætla svo að fara að dæma hana sjálfur. Hins veg-
ar veit ég það að þessi sýning á eftir að verða mér mjög
minnisstæð, því í þessum hóp er hægt að finna Edith Piaf,
Marilyn Monroe, Humphrey Bogart og Elton John. Hvorki meira
né minna. Ég held líka að skipun í hlutverk hafi tekist
mjög vel, og það sé réttur maður á réttum stað í hverju hlut-
verki, enda má það líka vera svo, þegar menn ætla sér að
koma upp sýningu á 3 vikum. Það má nú líka .þakka því hvað
samstarfið hefur verið gott, að þetta hefur tekist svona vel.
Blsn: NÚ hafa þetta verið mjög strangar æfingar. Hefur fólkið
mætt vel?
HT: Já, mjög vel, því þau vita að ef þau mæta illa, þá kemur það
mest niður á þeim sjálfum og meðan þau kvarta ekki er allt
í lagi. Hins vegar er þetta gífurlegt álag á þeim að vera
bæði í skóla og æfa svona stíft líka, en ég hugsa að áhuginn
vinni töluvert upp á móti erfiðinu, svo þetta er nú ekki
eins voðalegt og mönnum kann að virðast í fyrstu, því maður
með raunverulegan áhuga á einhverju máli fórnar nær hverju
sem er fyrir áhugamálið.
Blsn: Hvað finnst þér um aðstöðuna sem þau í leikfélaginu hafa
fyrir sína starfsemi?
HT: Ég myndi færa félagsmálakompuna eitthvað í burtu, stækka
sviðið í Möðruvallakjallaranum og gera þar almennilegt leik-
svið.
Skólinn þarf að eiga eigið leiksvið, því það er ómögulegt
að vera bundinn af kenjum L.A. Raunar er þetta mál með að-
stöðuna í leikhúsinu það eina sem mér hefur fundist miður
í sambandi við þessa sýningu.
Blsn: Finnst þér grundvöllur fyrir því að fara í ferðalag með þetta
verk?
HT: já, alveg hiklaust, því það er alveg sjálfsagt að sýna fyrir
fleiri en sjálfa sig, þó svo að það sé kannski dýrt, þá er
27