Muninn - 01.03.1978, Qupperneq 34
Nám í menntaskóla frh.
Þá tel ég heillavænlegast, ef hægt er að koma því við, að nemend-
ur vinni 1-2 sjálfstæð verkefni á hverri önn i einni grein inn-
an kjörsviðs síns og komi skýrsla eða ritgerð um það i stað prófs
i greininni. Heppilegast væri að sýna nemendum tilhliðrunarsemi
í tímasókn í þeirri grein sem verkefnið heyrir undir. Þessari
verkefnavinnu er a.m.k. mjög auðvelt að koma við í mála- og fél-
agsfræöideild en í síðari deildinni, þar sem ég þekki best til,
hafa einmitt verið gerðar athyglisverðar tilraunir á þessu sviöi.
NÚ síðast má nefna þá tilhögun í sögukennslu á vorönn að ekkert
próf verður tekið í greininni en nemendur skila einni, sjálf-
stæðri ritgerð sem einkunn verður gefin fyrir.
Ég tel ekki rétt að ræða frekar um valgreinar fyrr en til-
lögur valgreinanefndar hafa verið kynntar fyrir nemendum en í
þeim er m.a. lagt til að félagsstörf nemenda verði metin til
punkta og er það vel.
Ekki ætla ég m<=r í þf=c;SU stutta spjalli að útfæra nánar
þessar uppástungur. Megininntak þeirra er að kennslan í M.A.
miðist við að kenna nemendum að vinna, að takast skipulega á við
viðfangsefni sín, að afla sér upplýsinga og þekkingar sjálfstætt
og tjá síðan niðurstöður sínar á skriflegan eða munnlegan hátt.
Að lokum vil ég varpa þeirri spurningu fram til ykkar, nem-
endá, hvort próf sem einvöröungu byggja á upptalningu innihalds-
lausra minnisatriða hafi ekki endanlega gengið sér til húðar?
Kristján Kristjánsson 5.F.
Ótímabær vorfiðringur á góu. (frh.)
ÞÓtt flestu hafi hrakað hérlendis frá kristnitöku þá vitum
við enn að það má ekki pissa upp í vindinn.
Megi landsmönnum takast að halda geðheilsu sinni sem lengst
eða sturlast ella.
Síðan kemur vorið og gamla skólahúsið syðst á brekkubrúninni
rekur upp hlátur svo gríðarlegan að útilegumanninum léttist byrðin.
Á meðan vorið skartar sínu fegursta má enginn ganga með haust-
rykið í skónum.
öö inn Jónsson.
34