Kirkjuritið - 01.12.1941, Blaðsíða 20

Kirkjuritið - 01.12.1941, Blaðsíða 20
Desember. Höfuðdrættirnir í æfi Jesú. Eftir dr. theol. Jón Helgason biskup. II. Eins og starfi Jesú var tekið í fyrstu, gaf það glæsilegar vonir um framgang fyrir það málefni, sem hann barðist fyrir. En það er þó eins og Jesús hafi ekki verið fyllilega ánægður. Honum fékk ekki dulist, að árangurinn af starfi lians mundi aldrei verða eins og hann vildi, að hann yrði, nema hann legði megináherzluna á prédikunarstarfið. Svo þýðingarmikið sem kraftaverkastarfið gat verið, mátti það aldrei verða aðalstarf lians, svo hætt sem var við því, að fleiri og færri leituðu hans eingöngu vegna kraftaverka Iians, ýmist til þess að fá bót tímanlegra meina sinna, eða til þess að svala forvitni sinni, en skeyttu ekki um orð Iians. Jesús vill ekki ala upp í mönnum kraftáverkasótt. Hann vill ekki kaupa sér fylgi með neinum óandlegum meðulum. Með orðinu einu átti verkið að vinnast fyrst og fremst. Það hefir vafalaust kostað Jesúm baráttu, er liann hafði fundið slíka undrakrafta bærast hjá sér, að hverfa að miklu leyti frá kraftaverka- og lækningastarfinu svo mikla eftirtekt sem það vákti og svo mörgum sem það varð til blessunar, lil þess að gefa sig allan og því nær óskiptan að prédikuninni. En hann vann signr í þeirri baráttu. Einn morguninn á þeim tíma, sem aðsóknin var mest, er Jesús alt í eínu horfinn úr Kapernaum. Daginn aður ljósanna á milli og langt fram á nótt hafði hvert llækningakraftaverkið rekið annað og fjöldi fólks beið eftir að komast að með sjúldinga sína. Hann liafði um nóttina leitað einverunnar, til þess í næði að tala við föðurinn um starf sitt og fá opinberun vilja hans þar að lútandi. Og þegar lærisveinarnir loks finna liann og flytja honum þa

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.