Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.05.1954, Blaðsíða 12

Kirkjuritið - 01.05.1954, Blaðsíða 12
MAGNÚS JÓNSSON: Otto Dibelius, höfu&kempa lútersku kirkjunnar. I. 1 austanverðri Berlín er kirkja ein, kennd við Maríu guðsmóður, forn á svip, enda reist á 13. öld. En mikil er hún að stærð og má varla á milli sjá, hvort hún ber meiri svip af kirkju eða kastala, enda þarf hún nú á hvorutveggja að halda. Því að hér er vígi lútersku kirkj- unnar „austan járntjalds“, og merki þenslu og ófriðar eru augljós, bæði innan kirkju og utan. Inni í kirkjunni eru margir, sem taldir eru vera þar til þess að hlera frekar en hlýða á. Og utan við kirkjuna, skamman veg frá dyr- um hennar, ók lögreglubifreið að einum af prestum kirkj- unnar. Hann var tekinn upp í bifreiðina og hefir ekki sést síðan á þessum slóðum. En söfnuður Maríukirkjunnar lætur þetta ekki á sér festa. Lúterska fólkið flykkist að sinni fornu kirkju og heldur hátt hinum gamla fána, sem Marteinn Lúter dró á stöng, beint fyrir augunum á páfa og keisara, fyrir fjórum öldum. Forstöðumaður þessarar kirkju og forstöðumaður Lút- erskra í Þýzkalandi er tvímælalaust einn af mestu kirkju- leiðtogum, sem nú eru uppi, Friedrieh Karl Otto Dibélius, 73 ára að aldri, biskup Berlínar-Brandenburgar stiftis. Hann er einnig forseti Evangelísku kirkjunnar í Þýzka- landi, Die Evangelische Kirche in Deutschland, skamm- stafað EKD, og því æðsti kirkjuhöfðingi allra mótmælenda í Þýzkalandi. Hann sat í fangelsi á dögum Nasistanna og liggur nú undir stöðugum hótunum Kommúnistayfirvald- anna. En Dibelius biskup er óhagganlegur, úr hverri átt- inni sem stormarnir blása, óhagganlegur máttarstólpi Guðs

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.