Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.05.1954, Blaðsíða 42

Kirkjuritið - 01.05.1954, Blaðsíða 42
232 KIRKJURITIÐ á íslenzku: Kyrtillinn I—III, Reykjavík 1945), og The Big Fisherman 1948. Þessar skáldsögur seldust í milljónum ein- taka á frummálinu einu, en voru síðan þýddar á fimmtíu og fjórar þjóðtungur aðrar. Fiskimaðurinn mikli er sagan af Símoni Pétri frá því hann ungur lagði net sin til fiskidráttar á Genezaretvatninu, þar sem hann hitti Meistarann, sem gerbreytti örlögum hans, og þangað til hann leið píslarvættisdauða í Róm. Er þetta geysi- mikil og góð skáldsaga frá frmnkristninni, þar sem flestar höfuðpersónur guðspjallanna koma við sögu. Þegar höfundurinn hafði lokið við þessa skáldsögu, sem er nær 600 bls. í stóru broti, var hann orðinn dauðþreyttur, enda rúmlega sjötugur að aldri, og löngum þjáður. Segist hann hafa hálföfundað Símon Pétur, sem hann lætur sálast á sein- ustu blaðsíðu bókar sinnar, og hafði hann þá við orð að skrifa engan staf framar, að minnsta kosti ekki skáldsögur. „Naut eg nú frelsis míns í nokkrar vikur,“ segir höfundurinn. „I tuttugu ár hafði eg ekki fyrr lokið einni skáldsögunni en eg var byrjaður á annarri og nú hafði eg ekki meira að segja. Nú ætlaði eg að gefa mér tíma til að lesa ýmsar bækur, sem eg hafði ekki komizt yfir að líta í, og skrifa vinum mínum, sem eg hafði of mjög vanrækt.“ En áður en hann vissi af, var hann farinn að skrifa á ný, í þetta sinn ævisögu sína, sem hann varar þó lesandann við, að ekki geti orðið mjög spenn- andi, þar sem sér hafi aldrei verið dreift við neina stórfeng- lega atburði. En því miður entist honum ekki aldur til að rita nema um æsku og unglingsár sín, því að þá andaðist hann 16. febrúar 1951. Kom fyrri hluti ævisögunnar, er hann hafði lokið við, gefinn út að honum látnum og nefnist: Time to Remember, London, Peter Davies, 1952 (12 s 6d). Sögur eftir Douglas eru yfirleitt skemmtilegar, en flytja jafnframt ærin umhugsunarefni. Er óhætt að segja, að með þeim hafi honum tekizt stórum betur að vekja athygli og traust fjölda manna á ýmsum þeim kenningum Krists, sem almennt er litið á sem fjarstæður. Hann er bjartsýnn á mann- legt eðli og trúir því, að alla sé hægt að vinna til fylgdar við kristindóminn, sem fyrir honum er vegur fagnaðar og ham- ingjuríks lífs.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.