Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.05.1954, Blaðsíða 23

Kirkjuritið - 01.05.1954, Blaðsíða 23
OTTO DIBELIUS 213 fríkirkjusniðið. Hafa þær lært mikið á þvi, og nú senda þær ríflegan fjárstyrk til móðurkirkjunnar. Svo skeði það árið 1948 í Eisenach, smábænum rétt hjá Wartburg, að fulltrúar Lútersku kirkjunnar og Kal- vínsku, reformertu kirkjunnar komu saman — sjö áttundu hlutar og einn áttundi — og ræddu um möguleikana á samstarfi. Samningar gengu seigt og fast. En þá sté Otto Dibelius biskup í stólinn og prédikaði yfir hópnum. Hann lagði út af Ezek. 37. 22: Og eg vil gjöra þá að einni þjóð í landinu, á Israels fjöllum, og einn konungur skal vera konungur yfir þeim öllum, og þeir skulu eigi framar vera tvær þjóðir og eigi framar vera skiptir í tvö konungsríki. Prédikun þessi hefir verið ærið mergjuð. „Þetta er í eina skiptið,“ hefir hann sjálfur sagt, „sem eg hef með ræðu flutt fjöll úr stað.“ Fulltrúarnir gengu rakleitt að bví, að binda endi á málið og sömdu grundvallarlög fyrir hina Evangelisku kirkju Þýzkalands, EKD, sem áður er nefnd. Enginn vafi gat verið á því, hver yrði forseti mið- stjórnar hinnar nýju kirkju. Fyrir allra hluta sakir hlaut Otto Dibelius að verða fyrir valinu. Og nú geta allar evangeliskar kirkjur í Þýzkalandi talað einum rómi. EKD hefir til dæmis eigin fulltrúa í Bonn, °g gefur hann gætur að öllum hagsmunamálum kirkj- Unnar hjá stjórn og þingi. Standa því evangelisku kirkj- Urnar nú fyrst jafnfætis katólsku kirkjunni, og berjast til dæmis ekki síður en hún fyrir trúarbragðafræðslu í skólum. Hún hefir ekki sett á fót sinn eigin stjórnmála- flokk, heldur hafa meðlimir hennar flykkzt inn í flokk Adenauers, Kristilega lýðræðisflokkinn, eins og Dibelius. Sá flokkur var áður nálega eingöngu skipaður katólskum uiönnum, en nú eru 30% flokksins mótmælendur. Trúar- hragðaofsóknirnar hafa drjúgum unnið að því, að mjókka bilið og þíða klakann milli þessarra gömlu andstæðinga. En mótmælendurnir í Austur-Þýzkalandi hafa orðið tyrir ágjöfunum frá kommúnistum. Þó eru þessar ofsókn-

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.