Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.05.1954, Blaðsíða 24

Kirkjuritið - 01.05.1954, Blaðsíða 24
214 KIRKJURITIÐ ir að mestu óbeinar, enn sem komið er. Kommúnistar hyllast til þess að halda hávaðasamar ungmennasamkom- ur á sunnudögum nálægt kirkjunum. Eða þá að forstöðu- menn samyrkjubúa senda alla í vinnu á ökrum og í kart- öflugörðum á sunnudögum. Þá hafa þeir afnumið trúar- bragðafræðslu í skólum og skert tekjur presta og annað eftir þessu. En ýmislegt bendir til þess, að ofsóknir gegn kirkjunum fari í vöxt. Tugir presta hafa verið numdir á brott af lögreglu, og ekkert af þeim spurzt. „Já,“ segir Dibelius, þegar hann lítur yfir kirkjuna í Austur-Þýzka- landi, „það er ekki tómur leikur að vera kristinn". IX. Biskupinn, Otto Dibelius, er ekki eingöngu andlegur leið- togi kirkjunnar á Þýzkalandi. Hann er hvergi smeykur að koma fram að ytra hætti að höfðingja sið. Hann býr í fornri höll og mikilli á Faradayweg í Dahlem, en það er heldri manna bær í vesturjaðri Berlínar. Þetta er embættissetur yfirmanns hinnar Evangelisku kirkju Þýzkalands. Á vegg í skrifstofu hans hangir stór 16. aldar altaristafla eftir Matthías Griinewald, ómetanlegt listaverk, og í fundarsal hans eru sígild líkön helgra manna þýzkra. Kona hans andaðist nú nýlega, en dóttir hans, 42 ára, sér um heimili hans og er við hlið hans í þeim fjölda af veizlum, sem hann tekur þátt í eða veitir. Dibelius er mikill stjórnandi og afkastar ótrúlegri vinnu á ótrúlega skömmum tíma. Þykir hann stundum nokkuð snöggur upp á lagið. Ef komumanni dvelst eftir að erindi er lokið, hefir biskupinn það til að þrífa upp úr vasa sín- um gamla úrið sitt og gefa á annan hátt til kynna, að nú eigi gesturinn að hypja sig umsvifalaust. En þetta sama vasaúr er ekki síður svipa á hann sjálf- an. Það er hjá rúmstokki hans, og þegar það er 7, rís hann úr rekkju, flytur stutta bæn og söng með nánustu samstarfsmönnum sínum. Eftir það rekur það hann áfram miskunnarlaust við stjórnarstörfin til kl. 10 að kveldi.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.