Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.05.1954, Side 43

Kirkjuritið - 01.05.1954, Side 43
BÆKUR UM KRISTINDÓMSMÁL 233 Silfurkaleikurinn. Allt frá miðöldum hafa skáldsögur verið skrifaðar um hinn heilaga Gral, bikarinn, sem Jesús bergði á með lærisveinum sínum síðasta kvöldið, er hann dvaldi með þeim i þessu lífi, þegar hann stofnaði heilaga kvöldmáltið. Virðist þetta efni mjög hafa heillað hugi kristinna manna á liðnum öldum, og svo er enn í dag, því að á síðastliðnu ári kom út i Bandaríkj- unum skáldsaga eftir Thomas B. Costain (The Silver Chalice, A Story of the Cup of the Last Supper, London, Hodder and Stoughton Limited 1953. 15 s.), vinsælan höfund, og kom hún út í mörgum útgáfum hæði í Bandaríkjunum og Englandi °g var metsölubók allt árið. Aðalpersóna þessarar skáldsögu er Basil, ungur listamaður í Antíokkiu, sem fyrst er ættleiddur af ríkum kaupmanni þar, en síðan svikinn frá erfðinni af bróður kaupmannsins og seld- ur í þrældóm. Þaðan bjargar Lúkas guðspjallamaður honum þyrir tilstilli Jósefs frá Arimaþeu, sem hefir verið að leita að haefum listamanni til að gera umgerð um hinn heilaga kaleik, Sem gamli maðurinn varðveitir sem helgan dóm. Basil kvæn- ist sonardóttur Jósefs og lendir í alls konar ævintýrum, þvi að hann þarf að kynnast öllum helztu postulunum til að geta uiótað mynd þeirra á bikarinn. Þannig ferðast hann til Efesus hl að kynnast Jóhannesi og til Rómar til að leita uppi Pétur, sem hann finnur dulbúinn sem þjón í veitingahúsi. í Róma- horg lendir hann í hinni sukksömu hirð Nerós keisara og sleppur þaðan nauðuglega. Sagan fer yfirleitt troðnar slóðir, gerir t. d. ráð fyrir, að Jóhannes öldungur í Efesus sé sami maður og Jóhannes Zebe- deusson. En lýsingarnar á þeim Lúkasi og Pétri eru prýði- legar, og yfirleitt er sagan bráðskemmtileg. Hefði verið gam- an að þýða þessa sögu á íslenzku. En sá er sami gallinn á henni og fiskimanninum mikla, að hún er hryllilega löng, á sjötta hundrað blaðsíður í stóru broti, og er það nærri því frá- gangssök þess vegna, að leggja í það verk. Benjamín Kristjánsson.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.