Kirkjuritið - 01.05.1954, Blaðsíða 44
Nýstofnaðir kirkjukórar.
Kirkjukór Langholtssóknar (V.-Skaft.) var stofnaSur hinn
4. nóv. 1953 með 21 meðlim.
Stjórn: Form. Runólfur Runólfsson, Rakkakoti, ritari Guð-
rún St. Jóhannsdóttir, Bakkakoti, féhirðir Loftur Rmiólfsson,
Strönd. Organleikari og söngstjóri: Rmiólfur Runólfsson,
Bakkakoti. Varaorganleikari: Guðni Runólfsson, Bakkakoti.
Kjartan Jóhannesson organisti frá Stóra-Núpi stofnaði kór-
inn.
Kirkjukór VíSihólssóknar (N.-Þing.) var stofnaður að Víði-
hóli á Hólsfjöllum hinn 30. ágúst 1953 með 10 meðlimum.
Stjórn: Form. Kristján Sigurðsson, Grímsstöðum. Meðstjórn-
endur: Frú Kristín Gunnlaugsdóttir, Víðihóli, og frú Berg-
þóra Sölvadóttir, Grundarhóli. Organisti: Frú Kristín Axels-
dóttir, Grímstungu.
Ungfrú Björg Björnsdótth’, organleikari, Lóni í Kelduhverfi,
stofnaði kórinn.
Kirkjukór Bœjarsóknar (Borgarfjarðarpróf.) var stofnaður
hinn 16. des. 1953 með 13. meðlimum (14. var stúlka 12 ára,
sem gat vel sungið með).
Stjórnina skipa: Jakob Jónsson, Varmalæk, Ólafm Þór-
mundsson, Bæ, Erna Sigfúsdóttir, Hellum, Valdimar Elíasson,
Jaðri, og Jórunn Sveinbjarnardóttir, Laugarholti. Organisti:
Björn Jakobsson.
Bjarni Bjarnason organleikari frá Skáney stofnaði kórinn.
Kirkjukór Hvammskirkju (Mýrapróf.) var stofnaður hinn
13. marz 1954 með 20 meðlimum.
Stjórn kórsins skipa: Björn Gíslason, Sveinatungu, formað-
ur, Ásta Guðbjarnardóttir, Hreðavatni, ritari, Guðmundur
Sverrisson, Hvammi, féhirðir. Organleikari og söngstjóri er
Sverrir Gíslason, Hvammi.
Kjartan Jóhannesson organleikari frá Sóra-Núpi stofnaði
kórinn.