Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1955, Síða 5

Kirkjuritið - 01.04.1955, Síða 5
MAGNÚS JÖNSSON: Páskadagskvöld. Og sjá, þennan sama dag voru tveir af þeim á ferð til þorps nokkurs, sem er hér um bil sextíu skeiðrúm frá Jerúsalem, að nafni Emmaus, og voru þeir að tala sín í milli um allt þetta, er við hafði borið. Og svo bar við, er þeir voru að tala saman og ræða um þetta, að sjálfur Jesús nálgaðist þá og slóst í ferð með þeim. En augu þeirra voru haldin, svo að þeir þekktu hann ekki. Og hann sagði við þá: Hvaða samræður eru þetta, sem þið hafið ykkar á milli á leið ykkar? Og þeir námu staðar, daprir í bragði. Og annar þeirra, að nafni Kleófas, svar- aði og sagði við hann: Ert þú eini aðkomumaðurinn í Jerúsalem, sem veizt ekki það, sem gjörzt hefir þar þessa dagana? Og hann sagði við þá: Hvað þá? En þeir sögðu við hann: Það um Jesúm frá Nazaret, sem var spámaður, máttugur í verki og orði fyrir Guði og öllum lýðnum; hvernig æðstu prestarnir og höfðingjar vorir framseldu hann til dauðadóms og krossfestu hann. En vér vonuðum, að hann væri sá, er leysa mundi ísrael; já, og auk alls þessa er í dag þriðji dagurinn síðan þetta bar við. Enn fremur hafa og konur nokkurar úr vorum flokki, er árla voru við gröfina, gjört oss forviða; þær fundu ekki líkam- ann, og komu og sögðu, að þær hefðu jafnvel séð engla í sýn, sem hefðu sagt hann lifa. Og nokkurir af þeim, sem með oss voru, fóru til grafarinnar og fundu allt eins og konurnar höfðu sagt, en hann sáu þeir ekki. Þá sagði hann við þá: Ó, þér heimskir og tregir í hjarta til að trúa öllu því, sem spámennirnir hafa talað! Átti ekki hinn Smurði að líða þetta og ganga inn í dýrð sína? Og hann byrjaði á Móse og á öllum spámönnunum, og útlagði fyrir þeim í öllum ritningunum það, er hljóðaði um hann. Og þeir nálguðust nú þorpið, sem þeir ætluðu til, og hann lét sem hann ætlaði að fara lengra. Og þeir

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.