Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1955, Side 6

Kirkjuritið - 01.04.1955, Side 6
148 KIRKJURITIÐ lögðu fast að honum og sögðu: Vertu hjá oss, því að kvelda tekur og degi hallar. Og hann fór inn, til að vera hjá þeim. Og svo bar við, er hann sat til borðs með þeim, að hann tók brauðið, blessaði og braut það og fékk þeim. Þá opnuðust augu þeirra, og þeir þekktu hann, en þá hvarf hann þeim sýnum. Og þeir sögðu hvor við annan: Brann ekki hjartað í okkur, meðan hann talaði við okkur á veginum og lauk upp fyrir okkur ritn- ingunum? Lúk. 24, 13—32. Tveir menn eru á ferð. Mannlífið er ferðalag. Engin líking er betri um mann- lífið en þessi, ferðalag. Hvort sem átt er við líf einstakl- ingsins eða heillar þjóðar, eða jafnvel mannkynsins alls, þá er þessi líking bezt. Vér erum á ferð, frá einum stað til annars. En vér erum mismunandi glöggskyggnir, og hegðum oss ýmislega á þessari ferð. Spurning allra spurninga verður ávallt um þessa ferð: Hvaðan, hvernig, hvert? Yfir og undir og ofin saman við öll önnur vandamál er þessi þríliðaða spurning. Þó að hún skapi manninum óró og kvíða og jafnvel skelfing, er hún aðalsmark mannsins. Þessir tveir menn eru að ræða um „allt þetta, er við hafði borið“. Ætli þetta sé ekki góð mynd af mannlífinu? Erum vér ekki alltaf að basla með einhver vandamál, einhverja erfiðleika, stóra sumir, smáa aðrir. Og þjóðirnar og mann- kynið. Hvað heyrum vér nú í fréttum? Um hvað eru herrar jarðarinnar að tala sín í milli nema „allt þetta, er við hefir borið“, og hvernig við því eigi að snúast. Al- blóðugt mannkyn eftir eigin hamfarir. Og þó er enn verið að búa sig undir verri átök. Og æfinlega geta menn kennt einhverjum öðrum um óhöppin. Æfinlega sjá menn, „hvernig æðstu prestamir og höfðingjar vorir“ gera óskundann, jafnvel þeir, sem sjálfir ganga skilningssljóvir og þekkja ekki bezta vin sinn sér við hlið.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.