Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1955, Side 16

Kirkjuritið - 01.04.1955, Side 16
158 KIRKJUROTÐ eftirmáli við bókina, þar sem hann gerir nokkru nánari grein fyrir skoðunum sínum varðandi sögu guðsríkiskenningarinnar, eins og hún kemur fram í sambandi við breytilegar heimsslita- hugmyndir. Er það, sem hér á eftir verður sagt, að mestu leyti tekið úr þessari ritgerð. Von frumkristninnar. Von frumsafnaðarins um, að guðsríkið væri í nánd, var byggð á skýlausri kenningu Jesú sjálfs. En nú rættist ekki þessi von. Hvernig mátti þá kristnin lifa af slíkt áfall? Hvers konar umsköpun trúarhugmyndanna varð að eiga sér stað, til þess að kristnin héldi velli, þrátt fyrir hin stórkostlegu von- brigði? Þessu efni hefir eigi verið gefinn verulegur gaumur fyrr en nú á síðari árum. Páll postuii. Enda þótt Páll stæði andspænis þessu vandamáli, olli það honum ekki svo mikilla heilabrota vegna þess, að hann leit svo á, að komu ríkisins hefði verið frestað aðeins um stundarsakir. Gat hann því öruggur haldið fram þeirri sannfæring sinni, að ríkið hlyti að koma vegna sjálfsfórnar Jesú á krossinum. Kenning hans var reyndar sú, að guðsríkið væri þegar komið fyrir dauða og upprisu Jesú, kraftar þess væru komnir í hrær- ingu, þó að ávextir þess væru ekki fyllilega komnir í Ijós. En þessir atburðir væru upphaf þeirrar ummyndunar, er koma mundi yfir alla heimsbyggðina, er hún endurfæddist í æðri veröld Ijóss og lífs. í samfélaginu við hinn krossfesta og upp- risna endurlausnara voru þeir, sem trúðu, þegar orðnir hlut- takendur með honum í hjálpræði guðsríkisins. Þeir höfðu risið upp með Kristi, enda þótt ekki sæist að ytra útliti munur á þeim og öðrum mönnum. Þannig gerir Páll greinarmun á komu guðsríkisins og full- kominni birtingu þess. Hann telur eldri skoðunina, sem aðeins væntir þessa atburðar í framtíðinni, ekki fyllilega rétta. Megin- áherzlan í guðfræði hans hvílir reyndar á þessu, að hann telur, að guðríkið sé þegar hafið með upprisu Jesú, eins og meistar- inn sjálfur hafði líka gert ráð fyrir, að verða mundi. Þessi mikli hugsuður frumkristninnar sameinar þannig báðar þessar kenningar: Guðsríkið er komið og það er komandi, þó að fyrri hugmyndin lendi alltaf í skugga þeirrar seinni. En

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.