Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1955, Síða 18

Kirkjuritið - 01.04.1955, Síða 18
160 KIRKJURITIÐ tveggja, að afneita heiminum og vænta þess, að guðsríkið kæmi af sjálfu sér, olli því, að menn hreyfðu ekki hönd eða fót til að bæta ríkjandi ástand. Þannig varð hin kristna trú lítil lyfti- stöng fyrir grísk-rómverska heiminn, og siðakraftar hennar notuðust lítt að hafa bætandi áhrif á ríki hans og þjóðir. Þó að heiðindómurinn liði undir lok og kristnin yrði ríkistrú, hlaut hún vegna sérkenna sinna að hirða lítt um velferð ríkis- ins. Þessi heimur var ekki það deig, er súrdeig hennar fengi sýrt. Þetta breytta viðhorf kom einnig til að hafa áhrif á sjálfa endurlausnarhugmyndina. Upprunalega var sú hugmynd ríkj- andi, að allir trúaðir öðluðust hver með öðrum hjálpræði guðsríkisins. En nú varð einstaklingshyggjan ofan á. Hver einstaklingur fer nú að bera þunga áhyggju um sína eigin sálu- hjálp, en hirðir minna um framtíð mannkynsins og velferð heimsins. Öll er sú guðrækni eigingjörn og smásálarleg. Með eftirvæntingunni um hina bráðu komu guðsríkisins hvarf úr kristindóminum mikið af þeirri gleði, sem mjög einkenndi söfnuði Páls og frumkirkjuna. Hún var stofnuð í glaða sólskini upprisutrúarinnar, en verður síðan að halda áfram göngunni í kuldalegu dumbungsveðri daufrar og óvissrar vonar. Þegar guðsríkið, sem er í nánd, hættir að vera þungamiðja trúar- innar, verður kirkjan ósegjanlega miklu snauðari að von og gleði. Umsköpun trúarhugmyndanna. Þegar vonirnar um komu guðsríkisins færast þannig inn í óvissa framtíð, hlaut það að hafa í för með sér margvíslega umsköpun trúarhugmyndanna. Upprunalega væntu trúaðir þess að hljóta gæði hjálpræðisins með því að öðlast hlutdeild í guðsríkinu, sem hefjast átti með dauða og upprisu Jesú. En þegar vonirnar tóku að dofna um nálæga komu þessa hjálp- ræðis, þarfnaðist trúin nýrrar fótfestu. í stað trúarinnar á hjálpræðið sjálft kemur trúin á endurlausnina, er veitir hinum trúuðu réttindi til hjálpræðisins við endalok tímanna. Verður þá nauðsynlegt að taka endurlausnarhugmyndina til nánari at- hugunar og gera sér grein fyrir, á hvern hátt dauði og upp- risa Jesú tryggja hinum trúuðu hjálpræðið í framtíðinni. Um þetta snýst kristin trúfræði nær einvörðungu næstu aldirnar. Til þess nú að hafa von um að öðlast eilífa sælu á dómsdegi,

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.