Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1955, Side 21

Kirkjuritið - 01.04.1955, Side 21
HUGMYNDIN UM GUÐSRÍKIÐ 163 heimsbyggðina við komu guðsríkisins. Þannig fékk friðþæging- ardauði Jesú aðra merkingu strax 1 upphafi en Jesús hafði sjálfur í hann lagt. Hans eigin hugmynd er vikið til hliðar fyrir þeirri skoðun, að fórnardauðinn hafi verið óhjákvæmilegt skilyrði fyrir því, að Guð gæti fyrirgefið syndir. Þetta skapaði óleysanlegan vanda í guðfræðinni. Með hverjum hætti getur það orðið skiljanlegt, að Guð fyrirgefi syndir aðeins fyrir þá sök, að Jesús var deyddur? Og hvernig er hægt að samræma þá skoðun Faðirvorinu? Anselmus. Aldir liðu áður en nokkur hafði hugrekki til að gera sér grein fyrir þessu guðfræðilega vandamáli. Til þess varð fyrst- ur Anselmus frá Kantaraborg (1033—1109). í hinu fræga riti sínu: Cur Deus homo? (Hví gerðist Guð maður?) telur hann, að mennirnir hafi gert Guði minnkun með syndum sínum og verði Guð því að fá einhverjar móðgunarbætur. Sjálfir hafi mennirnir ekki getað látið þessar bætur í té, heldur hafi til þess þurft veru, sem bæði var guð og maður í senn. Til þess hafi Jesús verið í heiminn borinn, að afreka þessa fullnægju- gerð með dauða sínum og gera Guði með þessu móti fært að auðsýna bæði miskunn og fullnægja um leið öllu réttlæti. Allar seinni tíma tilraunir til að leysa þessa guðfræðilegu þraut hafa farið líka slóð og þessa og verið barnaskapur einber. Nýtt vandamál kemur til sögunnar. Samkvæmt hugmyndum Páls hafði dauði Jesú þann megin- tilgang að brjóta á bak aftur vald hinna illu heimsvætta og setja alla krafta endurlausnarinnar í hræringu. Er þetta í fullu samræmi við skoðun Jesú sjálfs og hugmyndir um áhrif dauða síns. En nú höfðu hinir trúuðu dáið og risið upp með Kristi og voru þannig orðnir hluttakendur í lífi hans. Þeir voru því rétt- lættir af syndinni. Þeir voru ekki framar holdsins menn, heldur menn andans. Þeir voru heilagir. Syndin snerti þá ekki framar. Kenning Páls er því ekki fólgin í komandi fyrirgefningu, heldur fyrirgefningu, sem þegar er fengin. Honum kemur vart í hug sá möguleiki, að menn kunni að falla frá og syndga, eftir að menn höfðu tekið trú. Hugmynd Páls um réttlætið fyrir

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.