Kirkjuritið - 01.04.1955, Side 34
Gegn sorpritunum.
Á síðustu árum hafa flætt yfir heiminn ógrynni af sorp-
ritum, svo að uppvaxandi kynslóð stendur hinn mesti voði
af. Er öllum góðum mönnum ljóst, að svo búið má ekki
standa, heldur verður almenningsálit og ströng löggjöf að
veita hér viðnám. Má til dæmis nefna það, að Churchill,
forsætisráðherra Breta, leggur það nú til, að slík útgáfa
verði bönnuð með lögum. Hér á íslandi er hafin sterk
andúðaralda gegn sorpritunum og þess vænzt, að Alþingi
og ríkisstjórn láti málið sem mest til sín taka. Fyrir því
hafa forystumenn ýmissa stofnana þjóðfélagsins og sam-
taka ritað dóms- og menntamálaráðherra og leitað full-
tingis hans, en hann hefir tekið málaleitun þessari af
fullum skilningi.
Er bréf þeirra, sem hér segir:
Reykjavík, 23. desember 1954.
Almennt er viðurkennt, að íslenzk menning að fornu og nýju
sé undirstaða sjálfstæðis þjóðar vorrar og varðveizla þjóðfrels-
isins sé bundin verndun þjóðmenningarinnar.
Stjórnarskráin heitir þjóðkirkjunni vernd og stuðningi sakir
þess, að kristin trú og siðgæði er hornsteinn menningar vorrar.
íslenzkum stjórnarvöldum, íslenzkri kirkju og íslenzkum
fræðslustofnunum ber því skylda til að standa á verði og rísa
gegn öllu, sem sýkir eða brýtur niður menninguna.
Á síðustu árum hefur sú óöld hafizt, að flutt eru inn í landið
erlend blöð og tímarit, sem eru sori erlendrar útgáfustarfsemi,
gefin út í því skyni að græða fé á lægstu og frumstæðustu
hvötum manna. Rit þessi eru að öðrum þræði full af geðæsandi
glæpafrásögnum, en að hinum klámfengin og kynæsandi. Yfir-
leitt eru þau útflúruð afskræmilegum og viðurstyggilegum