Kirkjuritið - 01.04.1955, Qupperneq 35
GEGN SORPRITUM
177
myndum, svo að þeir, sem ekki skilja lesmálið, drekka samt í
sig eitrið.
Jafnhliða þessum innflutningi er hafin hérlendis útgáfa líkra
tímarita með sama markmiði. Eru þau seld á sömu stöðvum
og fréttablöðin, og eru því á boðstólum frá morgni til mið-
nættis og miklu víðar en sjálf Ritningin og gullaldarbók-
menntirnar.
Þessi útgáfu- og sölustarfsemi er eins konar sýklahernaður,
sem stefnir öllum og þó einkum börnum og unglingum í beinan
voða. Þetta er andróður gegn kirkju og fræðslustarfsemi og
grefur undan menningunni. Má þetta því kallast brot á stjórnar-
skránni og níðhögg á þjóðfrelsið.
Það er ósk vor, sem vér fullyrðum að sé í samræmi við óskir
alls þorra þjóðarinnar, að þetta illgresi verði upprætt eftir því
sem unnt er og útbreiðsla þess stöðvuð.
Þess vegna leyfum vér oss að beina því til yðar, hæstv. hr.
dóms- og menntamálaráðherra, að þér látið fram fara athugun
á þessu máli og stöðvið síðan innflutning þeirra rita, er talizt
geta siðspillandi. Jafnframt séu upptæk gerð slík erlend rit
og bönnuð útgáfa íslenzkra glæpa- og klámrita.
Kröfur þessar geta hvorki talizt óeðlileg né óhæfileg skerðing
á ritfrelsi, skoðanafrelsi né sölufrelsi í landinu, þar sem dæmi
þess eru óteljandi, að einstaklingsfrelsið er miklu meira skert
með ótal hömlum á athöfnum manna.
Helgi Elíasson
Pálmi Jósefsson
form. Samb. ísl. barnakennara
Helgi Þorláksson
form. Landssambands
framhaldsskólakennara
Ásmundur Guðmundsson
Þorkell Jóhannesson
háskólarektor
vn
Jakob Jónsson
form. Prestafélags íslands
Pálmi Hannesson
Til dóms- og menntamálaráðherra.
*
Á.G.
12