Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1955, Síða 38

Kirkjuritið - 01.04.1955, Síða 38
180 KIRKJURITIÐ sig andstæða kirkju og kristindómi. Ólíklegt er, að þess konar fólk leggi eyrun við útvarpsmessum. Væri ekki vert að taka þetta til athugunar hér á landi, til dæmis fá tekinn upp sér- stakan „kirkjuþátt“ í útvarpinu? ★ Svona lýsir konan í dalnum, sem á dæturnar sjö, Monika í Merkigili, uppeldi barna sinna: „Ég kenndi þeim snemma, að til væri góður Guð, sem allt hefði skapað og allt léti vaxa og gróa, og hann gleddist alltaf, þegar börnin gerðu það, sem gott væri. En svo væri líka vondur karl, og hann þættist eiga tilkall til bamanna, þegar þau væru vond, gerðu eða segðu eitthvað ljótt, níddust á lítilmagn- anum, væru til að mynda vond við dýrin. En svo góður væri Guð, að hann léti litlu fallegu englana sína vaka yfir börn- unum á nóttunni, þegar þau hefðu hagað sér illa, til þess að gæta þeirra fyrir vonda karlinum." Saga Moniku sýnir, að þetta hefir haft góð áhrif á barna- hópinn hennar. ★ Sigurður Gunnarsson, skólastjóri á Húsavík, dvaldi í Eng- landi í fyrra og kynnti sér kennslu í enskum skólum. Honum farast svo orð í síðasta hefti Menntamála: „Daglegar morgunbænir eru eitt af því fáa, sem skólunum er beinlínis fyrirskipað af stjórnarvöldunum. Þess vegna hefst hver skóladagur með stuttri guðsþjónustu. Skólinn sér um þá athöfn fjóra daga vikunnar, en útvarpið einn. Svo sem kunnugt er, er brezka þjóðin mjög kirkjurækin. Ég varð fyrst var við áhrif þess í skólunum. Ég varð, í fáum orðum sagt, hrifinn af þessum bænastundum. Þær fóru nær undantekningarlaust frábærlega vel fram og voru til sannrar fyrirmyndar. Hin djúpa alvara og siðferðilega festa, sem einkenndi framkomu barnanna, mun mér seint úr minni líða. Það fer vart á milli mála, að slíkar athafnir, sem mótast af svo mikilli einlægni, festu og trúartrausti, marka heillarík spor í bljúgar barns- sálirnar. Mun þetta atriði skólastarfsins og kristindómsfræðsl- an yfirleitt, sem mikil áherzla er lögð á, eiga drjúgan þátt í hinni þroskuðu og fáguðu framkomu barnanna." Gísli Brynjólfsson.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.