Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1955, Page 43

Kirkjuritið - 01.04.1955, Page 43
VALD. V. SNÆVARB: Þegar þysinn hljóðnar. „Ávarpiö hver annan meö sálmum, lofsöngvum og andlegum Ijóöum, — syngiö og leikiö Drotlni í hjörtum yöar. — Ef. 5, 19. Ef spurningin: „Til hvers fer þú til kirkju?“ væri borin upp fyrir oss, myndu svörin verða nokkuð sundurleit að öllum lík- indum. — Nokkrir myndu máske segja: „Eg fer til aö sýna mig og sjá aöra.“ Látum svo vera. Vel getur þeim, sem í ein- angrun lifa og aldrei neitt fara, verið nokkur sálubót í því, að hitta menn við kirkju sína og hlýða ásamt þeim helgum tíðum. — Aðrir þættust hafa erindum að gegna þar á staðnum. Víst getur erindrekstur á kirkjustað verið „verklegur kristin- dómur“. mörgum góðum málum hefir verið ráðið til lykta í sambandi við messuferðir. — Einhverjir kynnu að segja, að þeir færu þetta sér til skemmtunar og til að „heyra til prests- ins“. Með þessu má vel sameina gaman og gagn, og ætti sízt að því að finna. — Loks kæmu svo sumir af innri þrá til kirkju sinnar, og auðvitað er það æskilegast. — En þegar komið er í kirkju, hvað skal þá gjöra? Trúlega myndu margir svara því svo, að þá ættu menn að sitja hljóðir og hlusta á það, sem fram væri flutt, og er það að vísu rétt, svo langt sem það nær. Textinn segir þó: „Ávaryiö hver annan meö sálmum, lofsöngvum og andlegum ljóöum.“ Svo virðist sem postulinn sé að hvetja menn til virkrar þátttöku í guðsþjónustunni með þessum orðum. Hvernig geta menn það? Það er sjálfsagt hægt á ýmsan hátt, en hér skal aðeins á eitt drepið. Virka þátttóku i guðsþjónustunni geta flestallir kirkjugestirnir tekiö meö þvi, aö syngja bœöi sálma og messusvör úr sætum sínum. Þá er farið eftir hinni postullegu áminningu textans. — Safnaöar- söngurinn, eða hin almenna þátttaka kirkjugestanna í söngn- um> gjörir guðsþjónustuna miklu áhrifaríkari en ef allir, aðrir

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.