Kirkjuritið - 01.11.1957, Blaðsíða 6
388
KIBKJURITXÐ
Stjómarpallurinn og einkunarorðin.
Eftir morgunbænir blasa við á salargafli að baki aðalstjórn-
enda þingsins á palli einkunnarorðin: Kristur frelsar og sam-
einar. Þau eru skráð mjög stóru letri á þremur tungumálum:
Þýzku, sænsku og ensku. Frammi í salnum eru borð og sæti
fulltrúa, og rísa þar merki þeirra, sem fulltrúamir eru fyrir.
íslendingar og Ungverjar sitja saman. Ordass í miðið. Þetta
em sérstaklega geðþekkir sessunautar, og ræðumst við nokkuð
við. Heyrnartæki eru fyrir framan okkur, og getum við stillt
þau svo, að við heyrum ræður á þýzku, sænsku, frönsku eða
ensku.
Forseti þingsins og Lúterska heimssambandsins er Hanns
Lilje, biskup í Hannover. Hann er maður á sextugsaldri, ekki
hár vexti, en mikill í herðum og samanrekinn. Svipurinn einarð-
legur og gáfulegur, og honum brennur eldur úr augum. Hann er
ofurhugi hinn mesti og bauð Nazistum birginn. Var hann því
settur í fangelsi og pyndaður, og munaði minnstu, að hann yrði
tekinn af lífi. Fengu Bandamenn bjargað honum á síðustu
stundu. Hann er frábær mælskumaður og talar ágætlega sex
tungumál. Dást allir að málssnilld hans og stjóm á málefnum