Kirkjuritið - 01.11.1957, Page 7

Kirkjuritið - 01.11.1957, Page 7
MYNDIR FRÁ MINNEAPOLISÞINGINU 389 Heimssambandsins síðustu fimm árin. Hann leitast við að lýsa því, hver stefnan eigi að vera: Vér megum ekki láta oss nægja að endurtaka hugsanir horf- inna kynslóða, heldur verðum vér að tala því máli, sem sam- tíð vor skilur og þarfnast að heyra. „Kristur frelsar og samein- ar“. Frá þeirri játning vorri verður að berast straumur af Iífi til þjóðanna. Hjálpin kemur frá Kristi í erfiðleikum, áhyggjum og angist kynslóðar vorrar. Heiminn heltekur óttinn við nýja styrjöld og það hrun, sem af henni muni leiða. Menntamenn og stjórnmálamenn eru sammála um það, að mannkynið verði að hefja samstarf, en bann við notkun kjarorkusprengja komi fyrir ekki nema því aðeins, að góðhugur ríki með þjóðunum. Samvinna í þeim anda byggist eingöngu á siðgæðisþreki — nýju bræðralagi með mönnunum. Kristnir menn mega aldrei þreytast á því að boða, að Jesús Kristur einn er sá, sem getur breytt mönnunum svo. Hann hef- ir með upprisu sinni sigrað dauðann og veitt heiminum nýtt líf. Vélamenningin hefir að vísu bætt samgöngur þjóða í milli og ýms ytri kjör, en hún hefir ekki gjört menni sælli — öðru nær. Öryggisleysið einkennir líf þeirra á vorum dögum. Vér lifum á öld eyðingar og afneitunar. Menn vilja engar blekking- ar í trúarefnum, en brestur þrótt til að trúa. Og þó eru menn- imir gagnteknir trúarþrá. Nútímamaðurinn, sem er hrjáður af efasemdum, tekur aðeins gildan skýran, skilmerkilegan, göfgan vitnisburð trúarinnar. Hann verður því að eiga kost á að hlýða á slíkan trúarboðskap. Einkunarorð vor tengja kjarna trúar vorrar vandamálum vorra tíma. Því að Kristur einn er frelsarinn, og enginn vafi getur leikið á því, að frelsi Vesturlanda er arfur frá kristindóminum. Veigamesti skerfurinn, sem lúterska kirkjan getur lagt til al- kirkjuhreyfingarinnar er sá að bera fram þann vitnisburð, að Kristur sé sá eini, er sameinar. í þessum anda voru fundarstörfin unnin. Friður og einlægni ríktu í salnum.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.