Kirkjuritið - 01.11.1957, Page 19

Kirkjuritið - 01.11.1957, Page 19
PISTLAR 401 Og spillzt. Þetta sýnir aðeins, að slagorð duga lítt hér sem oftar. Þá sá ég þess getið, að kirkjunnar menn létu sig jafnvel þetta mál varða. Eins og það væri óþarft, jafnvel óhæfa. En þá fara menn nú að verða all meinsamir í garð vorn og skrítnir í dóm- um, ef þeir, sem oftast bera oss á brýn, að vér prédikum jafnan uppi í skýjunum eða um lífið handan dauðans, amast við því, að vér tökum svona siðferðilegt dagskrármál til umræðu bæði á stól og stéttum. Kirkjunni er áreiðanlega skylt að vara við því, að hvítt sé kallað svart og svart hvítt, eða leikur sé gerður til að spilla æskunni í gróðaskyni. Því verður aldrei með réttu neit- að né það afsannað, að ef þessi bók kemur út í íslenzkri þýð- ingu, þá er það framar öllu gert til þess að græða á því fé. Einkum með því að freista unglinganna til að Iesa bókina. Flest- lr fullorðnir geta lesið hana óþýdda hvort sem er. Sönnun þessa er fyrst og fremst sú, að mörg sígild rit heimsbókmenntanna eru enn óþýdd. Og höfuðrit Nobelsverðlaunamanna eru sum 1 þeim flokki. Svo virðist sem íslenzku blöðin hafi yfirleitt fremur reynt að verja þessa bók. En þá fannst mér skörin færast nokkuð mikið UPP í bekkinn, er eitt þeirra gat þess, að hún yrði víst of síð- buin sem jólabók í ár. Hvemig erum vér farin að hugsa? Geng- Ur kauptíð jólanna ekki nóg út í öfgar, þótt menn vilji ekki nota jólin, hátíð bamanna og hreinleikans og friðarins — hátíð aUs þess, er oss ætti að þykja æðst og fegurst, — til að koma ut bók, sem dómstólamir verða að skera úr um, hvort sé prent- hæf eða ekki. Ég held, að hvað, sem annars má segja um þetta roál, sé alveg víst, að bókin á ekki að koma út á jólunum. Hún er engin jólabók! Þannig hefir miklu ryki verið þyrlað upp um þetta ritverk °g það gyllt með skrúðmælgi og svokallaðri listelsku. En ég spái því, að eftir stutta stund sé lofsöngurinn um roðastein- wn hljóðnaður og menn hirði ekki frekar um að lesa hann en að borða uldinn mat, sem gat svo sem verið góður, ef hann efði ekki verið maðkaður og skemmdur. 26

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.