Kirkjuritið - 01.11.1957, Blaðsíða 20

Kirkjuritið - 01.11.1957, Blaðsíða 20
402 KIBKJUBITIÐ Gleði lífsins og iequið. Einhvers staðar hefi ég gripið á loftí. þessi orð Helenar Keller, hinnar blindu og daufdumbu, og hripað þau niður hjá mér: „Hversu hamingjusöm hljótið þér ekki að vera, þér, sem heyr- ið og sjáið hina fögru veröld, fyrst ég er sæl. Ég get strokið hin blíðu blóm og fundið til sólgeislanna, merkt takt tónanna með fótunum og þreifað með fingrunum eftir máli mannanna. En ég á líka skoðun og þér á þeim hlutum, sem ég get ekki ht- ið, því að ég held, að vér höfum hæfileika til að verða vör þeirra áhrifa og tilfinninga, sem mannkynið hefir orðið fyrir frá upphafi...... Þessi erfðahæfileiki, er hið sjötta skilningarvit, — sálarskyn, sambland sjónar, heyrnar og tilfinningar. En þér eruð þó ham- ingjusöm, sem getið notið allra hinna sex skilningarvita, já, hversu sæl hljótið þér ekki að vera.“ Gunnab Ábnason. Þér munuð lifa. Ef ég verð á undan þér inn í friðarb'láinn, horfðu ekki á eftir mér ofan á moldar náinn. Andinn lifir. Efnið fer eins og bliknuð stráin, en þroska vorið eilíft er aldrei verð ég dáinn. Stefán Hannesson. * * * Oss hættir til að dæma sjálfa oss eftix hugsjón vorri, en aðra eftir gjörð- um þeirra. — Harold Nicholson.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.