Kirkjuritið - 01.11.1957, Qupperneq 21
Skýrsla um sumarbúðir ‘Pióðkirkfunnar
UPPHAF.
Vorið 1957 ákvað biskup íslands, að þjóðkirkjan efndi til sérstakrar
æsku'lýðsstarfsemi að Löngumýri í Skagafirði. Forstöðukonan, frk. Ingi-
björg Jóhannsdóttir, hafði góðfúslega boðizt til að lána húsakynni og
áhöld skólans til starfseminnar. Biskupinn fól séra Pétri Sigurgeirssyni
og séra Braga Friðrikssyni að undirbúa þetta starf, og unnu þeir ásamt
öðru áhugafólki að skipulagningu þess. Starfsemi þessi var auglýst í blöð-
um og útvarpi, og sérstaklega í Tómstundaþætti bama og unglinga. Þá
var prestum í nokkrum þéttbýlli kaupstöðunum skrifað og þeir beðnir
að vekja athygli á starfinu.
STARFSEMIN.
Sumarbúðimar tóku til starfa mánudaginn 1. júlí.
Fyrsti dvalartíminn var fyrir stúlkur 10—12 ára, næst fyrir drengi
9—12 ára og loks fyrir telpur 12 ára og eldri.
Þátttakan var sem hér segir:
2,—12. júlí telpur alls 39
17,—27. júlí drengir — 22
31. júlí til 9. ág. stúlkur — 27
Alls 88
Þátttakendur skiptust þannig eftir hémðum: Reykjavík 35, Akureyri 8,
Siglufjörður 9, Eyjafjörður 7, Skagafjörður 6, Kópavogur 6, Húnavatns-
sýsla 4, Hafnarfjörður 2, Akranes 2, Kjósarsýsla 3, Þingeyjarsýsla 3,
Seyðisfjörður 1, Djúpivogur 1, Snæfellsnessýsla 1.
Kennarar vom þessir:
1. flokkur: Jónas Jónsson, Akureyri, stjómandi,
Sigurður Birkis, söngmálastjóri, Reykjavík,
Valdimar Snævarr, fyrrv. skólastiórj, Völlum,
Séra Lárus Halldórsson, Kópavogi,
Séra Bjöm H. Jónsson, Reykjavík,
Ingibjörg Hannesdóttir, handíðakennari, Reykjavík.