Kirkjuritið - 01.11.1957, Qupperneq 42
424
KIEKJUBITIÐ
það um margvísleg kirkjumál, en samþykktaratkvæði um ýmis
„innri“ mál kirkjunnar, svo sem kirkjulegar athafnir o. fl., ef
prestastefna einnig samþykkti; loks nokkurt ráðstöfunarvald
yfir tillögðum fjármunum, þó undir úrskurði dóms- og kirkju-
málaráðuneytis, ef með þyrfti. — Skylt var að kalla saman fund
einu sinni á ári, ársfund eða aðalfund, en aukafundi alla eftir
þörfum. Breyttist þetta brátt í meðförum á þá lund, að fundir
urðu fleiri á ári hverju, án aukafundarnafns. Eigi var kirkju-
ráðsmönnum ætluð nein þóknun fyrir störf sín.
Yfirlit um fundarhöld Kirkjuráðs þenna liðna aldarfjórðung,
samkvæmt gerðabók ráðsins, verður þannig: Alls hafa verið
haldnir 117 fundir, sem verður til jafnaðar 4—5 fundir á ári,
en komu í reyndinni næsta misjafnt á árin, flestir urðu þeir
fyrstu árin eða hæsta tala 11 (1932, síðan 9 1933 og 7 1934),
en einu sinni eftir það 10 (1939), þá úr því hæst 5 á ári og
þaðan af færri, en meira magn mála þá afgert á einum fundi.
Fundimir dreifðust árlega á alla mánuðina, nema júní og júlí
— þá voru engir fundir haldnir.
Á þessu tímabili hafa verið 3 aðalforsetar Kirkjuráðs (sjálf-
kjömir), biskupamir Jón Helgason frá byrjun 1932 og til og
með 1938, Sigurgeir Sigurðsson 1939—1953 og Ásmundur Guð-
mundsson 1954 og síðan. Varaforsetar (kjörnir) Sigurður P. Sí-
vertsen, Ásmundur Guðmundsson og Gísli Sveinsson. En kirkju-
ráðsmenn hafa þessir verið í heild, misjafnlega langan tíma:
Af hálfu kennivaldsins þeir Sigurður P. Sívertsen, Þorsteinn
Briem, Ásmundur Guðmundsson, Þorgrímur V. Sigurðsson og
Jón Þorvarðsson. Af hálfu leikmanna þeir Matthías Þórðarson,
Ólafur B. Björnsson, Gísli Sveinsson, Vilhjálmur Þór og Gizur
Bergsteinsson. En síðast frá og með 1954 hafa þessir skipað
Kirkjuráðið saman: Ásmundur Guðmundsson biskup (aðalfor-
seti), Gísli Sveinsson fv. sendiherra (varaforseti), Þorgrímur V.
Sigurðsson sóknarprestur. Núverandi ritari Kirkjuráðs (ráðinn)
er séra Sveinn Víkingur. Þótt, eins og áður segir, Kirkjuráð
þetta sé „afnumið" með nýjum lögum, má gera ráð fyrir, að
téðir kirkjuráðsmenn gegni störfum sem áður, þar til lögin um
Kirkjuþing og Kirkjuráð koma til framkvæmda.