Kirkjuritið - 01.11.1957, Blaðsíða 44

Kirkjuritið - 01.11.1957, Blaðsíða 44
426 KIRKJUBITIÐ sjóði; prestsseturshús og jarðir; kirkjusöngur og ráðning söng- málastjóra þjóðkirkjunnar; álitsgerðir um löggjafarfrumvarp varðandi presta, kirkjur og söfnuði öll árin; utanfarir kirkju- manna; sunnudagsskóla; löggjöf um Kirkjuþing; prentun Biblí- unnar á fslandi, o. fl. o. fl. Drepið hefir verið á skipan hins nýja Kirkjuráðs, en það tekur ekki við nema nokkrum af verkefnum hins fyrra ráðs, eins og á var minnzt; annað hverfur undir sjálft Kirkjuþingið, sem hefir ráðgjafar- og tillögurétt, svo og samþykktaratkvæði með líkum hætti og gamla Kirkjuráðið. En væntanlega tekst að auka vald þingsins með tíð og tíma. Nýja ráðið skal og „vera biskupi til aðstoðar og fulltingis um að koma fram þeim málum, er Kirkjuþing hefir samþykkt". Það getur einnig af sjálfdáðum lagt þau mál fyrir Kirkjuþing, er það lystir hverju sinni, enda er kirkjuráðsmönnum heimilt að sækja Kirkjuþing, þótt eigi séu þeir kirkjuþingsmenn. Kirkjuráðið hefir og sams konar ráðstöf- unarrétt yfir ýmsum fjármunum til kirkjulegra þarfa (svo sem prestakallasjóði) sem hið eldra kirkjuráð o. s. frv. Gísli Sveinsson. Hvenær, — og ekki fyrr en hvenær? Spyrjuni ekki um það. Verum að- eins þolgóðir. Hún hlýtur að koma, hún verður að koma, hin heilaga tíð hins eilífa friðar, þegar hin heilaga Jerúsalem verður höfuðborg heimsins. Unz það skeður, þá verið giaðir og reifir, trúbræður mínir, boðið fagn- aðarerindi Guðs með orðum og gjörðum, og verið hinni sönnu og óbigðulu trú trúir allt til dauða. — Novalis. * * * Vér deyjum ei og getum eigi gleymt; vér erum eilífs eð'lis, liðin tíð seni framtíð er oss nútíð. — Btjron (M. J.) * * * Þegar Valens keisari spurði Basilíus mikla, hvar hann hyggðist leita hælis í ofsóknunum, svaraði kirkjufaðirinn: Aut sub coelo aut in coelo. (Annað hvort undir himninum eða í himninum).

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.