Kirkjuritið - 01.11.1957, Page 50
432
KIRKJURITIÐ
Séra Þorbergur Kristjánsson
í Bolungavík, prédikar á útisamkomu.
Staðarhraunsldrkja á Mýrum
var endurvígð eftir gagngerðar um-
bætur 27. f. m. Vígsluna framkvæmdi
séra Sigurjón prófastur Guðjónsson í
Saurbæ í sjúkdómsforföllum herra
biskupsins. Nokkrir fleiri prestar voru viðstaddir og aðstoðuðu. Margt
fólk kom. Kirkjunni gafst margt í þessu sambandi m. a. fögur altaristafla
eftir frú Barböru Árnason. Gefendur voru 10 systkini frá Hítardal, er heiðr-
uðu þann veg minningu foreldra sirma Sigríðar Teitsdóttur og Finnboga
Helgasonar og látins bróður síns, Péturs.
Frú Astríður Petersen andaðist 10. október. Hún var dóttir Stefáns
prófasts Stepliensens í Vatnsfirði, en ekkja séra Ólafs Petersens á Sval-
barði, er dó á unga aldri 1897. Þessi mæta og kyrrláta kona hafði því ver-
ið ekkja í tæp sextíu ár.
Dr. Hal Koch guðfræðiprófessor frá Danmörku dvaldi hér um viku
skeið í síðastliðnum mánuði. Hann hélt þrjá fyrirlestra í guðfræðideildinni,
og fór einnig norður á Akureyri.
Bent Noack guðfræðiprófessor frá Kaupmannalhöfn kom hingað ný-
lega og dvelst hér um sex vikna skeið. Skýrir hann Markúsarguðspjall m.
m. í guðfræðideildinni.
Séra Harald Sigmar frá Vesturheimi kennir nú við guðfræðideild-
ina í stað Þóris Þórðarsonar doósents, sem dvelur við framhaldsnám í
Bandaríkjunum.
Leiðrétting. Undir myndinni af Saurbæjarkirkju í síðasta hefti átti
að standa: Hallgrímskirkja í Saurbæ. Gömlu kirkjuna fékk KFUK en ekki
KFUM.
KIRKJURITIÐ
kemur út 10 sinnum á ári. — Verð kr. 35.00.
Afgreiðsla hjá Elísabetu Helgadóttur, Hringbraut 44. Sími 14776.