Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1959, Page 5

Kirkjuritið - 01.12.1959, Page 5
KIRKJTURITIÐ 435 leggja af himni og engil birtast sveipaðan geisladýrð. Þeir nema rödd hans: „Ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum, því að yður er í dag frelsari fæddur . .. Þér munuð finna ungbarn reifað og liggjandi í jötu.“ Og í sömu svipan skýrist sjón hirðanna. Þeir sjá með englinum fjölda himneskra hersveita, sem syngja Guði fyrsta jólasálm- inn: „Dýrð sé í upphæðum Guði og á jörðu friður með mönnunum, sem hann hefir velþóknun á.“ Þessir fátæku hirðar safnast fyrstir, sem fulltrúar ísraels, að jötunni, til barnsins nýfædda, sem á að verða frelsari heims- ins. Og frásagan um vitringana frá Austurlöndum lýsir því, hvernig fulltrúar heiðnu þjóðanna koma einnig úr fjarlægð við blik leiðarstjörnunnar, sem vísar þeim veginn til Betlehem. Þeir glöddust harla mjög. Þeir veittu lotningu konunginum ný- fædda og báru fram fyrir hann gjafir sínar. Ljómaði eilíft ljósið þá, lét oss nýja veröld sjá. Svo var ort um hin fyrstu kristnu jól. Við komu Krists varð veröldin önnur. Áhrif hans hafa breytt henni. Vér sjáum það glöggvast um liðnar aldir á þróun margháttaðra líknarstarfa og vaxandi hluttekningu með þeim, sem bágt eiga og erfitt. Ekkert er ljúf- ara eða fegurra íhugunarefni en það. Væru þau áhrif horfin, væri sem leiftur sjálfrar leiðarstjörnunnar slokknuðu á himni sögunnar. En þrátt fyrir þetta er enn mikið veraldarmyrkrið. Mann- kynið hefir haldið braut bróðurbanans og beðið tjón á sál sinni. Birta kristindómsins hefir ekki náð að gefa þjóðunum frið á jörð. Heiðni ríkir víða í stjórnmálum þeirra og félagsmálum. Það vill gleymast, sem eitt er nauðsynlegt: Þroski trúar og siðgæðis, er engin tækniþróun fær bætt. Maðurinn verður hvorki betri né hamingjusamari fyrir það, þótt hann komist alla leið til tunglsins eða annara hnatta. Og með beitingu vopna verður mannkynið sinn eiginn tyftari og bölvaldur. Eina von mannheims er sú, að ljósið skín í myrkrinu. Hann á enn jól, ef hann horfir hugfanginn á ljómann yfir Betle- hemsbarninu og vill stefna á hann. Mér hefir oft fundizt, þegar ég hefi virt fyrir mér alla ljósadýrðina á jólum, einnig hér við yztu höf, að ljósin öll væru kveikt af ljósinu eina yfir jöt-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.