Kirkjuritið - 01.12.1959, Blaðsíða 32
Prestskvennamótið í Sigtuna.
Sjöunda norræna prestskvennamótið var haldið í Sigtuna í
Svíþjóð dagana 20.—23. ágúst 1959. Fundir voru haldnir í
íþróttasal hins fræga menntaskóla (Humanistiska Lároverket),
og þar fór setningarathöfnin fram hinn 20. ágúst kl. 12 á há-
degi.
Þar voru saman komnar um 360 prestskonur, 230 frá Sví-
þjóð, 52 frá Noregi, 39 frá Finnlandi, 38 frá Noregi og 1 frá
tslandi. Meðal mótsgesta mátti sjá Manfred Björkquist, biskup
í Sigtuna, og konu hans, systurnar Britu Brilioth og Yvonne
Anderberg, dætur Nathans Söderbloms erkibiskups, og fleiri
sænskar biskupsfrúr. Frá Finnlandi voru erkibiskupsfrúrnar
Salomies og Lehtonen (ekkja), og frá Noregi frú Smemo, er
kom með manni sínum á Skálholtshátíðina 1956. Frá Dan-
mörku var biskupsfrú Fuglsang-Damgaard, dóttir séra Carls
Wagners, er var lengi prestur á Grænlandi. Frúin er fædd og
uppalin á Grænlandi. Hún er vinur íslands og hefir opinber-
lega stutt málstað Islendinga í handritamálinu.
Frú Brilioth stjórnaði undirbúningi mótsins, og þótti það
þrekvirki, þar sem hún hafði misst mann sinn, Brilioth erki-
biskup, fyrir nokkrum mánuðum. Hún bar sorgarbúning, og
stungu hin svörtu klæði hennar mjög í stúf við létta og lit-
skrúðuga sumarkjólana, sem aðrar konur báru.
Við innri enda salarins hafði verið komið fyrir ræðupalli,
skrýddum blómum. Að baki hans voru reistir fánar hinna fimm
norrænu þjóða, er tóku þátt í mótinu. Fáni íslands var í miðj-
unni, því að löndunum var raðað í stafrófsröð.
Frú Brilioth setti mótið og bauð gesti velkomna. Hún til-
kynnti, að drottning Svíþjóðar hefði ætlað að vera viðstödd
þessa athöfn, en því miður forfallazt. Var henni þá sent skeyti
undirritað af fulltrúum hinna fimm norrænu þjóða. Seinna barst
mótinu þakkarskeyti frá drottningu. Þá fluttu fulltrúar gesta-
þjóðanna kveðjur: Frú Fuglsang-Damgaard fyrir hönd Dan-