Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1959, Side 19

Kirkjuritið - 01.12.1959, Side 19
KIRKJURITIÐ 449 nemi aðalatriði kristinnar trúar og geti gert grein fyrir trú sinni, að þeir nemi svo bóklegt móðurmál sitt, að þeir geti haft nokkurn veginn gagn af einföldum bókum og að þeir geti unn- ið sjálfum sér brauð, og verði ekki heldur en aðrir félagslimir öðrum til þyngsla, meðan þeir hafa heilsu og krafta til. Auk bókmálsins kenni ég málleysingjunum skrift, fingramál og bendingamál, biblíusögur, stutta útskýringu á fræðum Lút- ers, einfalda tölvísi, tímatal og hið einfaldasta í dýrafræði. Ég ven þá við alls konar sveitavinnu, og laga mig sérstaklega eftir því, til hvers þau eru helzt hneigð hvert um sig, svo sem fjárgeymslu, vallar- og heyvinnu; en á vetrum lítið eitt við fóðurgjöf og heyskömmtun, en stúlkurnar við tóvinnu alls kon- ar og við fjósa- og eldhúsverk. Frá miðjum maí til miðs sept- ember læt ég börnin starfa með öðrum heimilismönnum að öllu því, sem fyrir fellur á heimihnu, nema hvað ég tek dag og dag, svo sem einn í viku, til að láta þau rifja upp það, sem þau hafa áður numið. En hina átta mánuðina er bóknámskennslunni stöðuglega haldið áfram, oft allan daginn frá morgni til kvölds. Mér til aðstoðar við kennsluna, og til að halda börnunum við lærdóm, þegar ég er að heiman, hef ég heyrnar- og mállausan pilt, Kristján Jónsson, ættaðan norðan úr Skagafirði. Hann lærði í Kaupmannahöfn og var þaðan vel að sér, en þegar hann kom til föður síns aftur, skildi hann engan og enginn hann, nema þeir, sem dönsku skildu. Hann kunni og enga vinnu, sem honum yrði þar að notum. Áður en ég gat haft not af honum, varð ég að kenna honum dálítið í íslenzku bókmáii og útleggja á dönsku fyrir honum allt það, sem hann átti að kenna. Nú er hann mér til mikillar aðstoðar, og lært hefir hann þegar alla sveitavinnu, enda geld ég honum fullt vinnumannskaup.. Þau 6 ár, sem ég hef fengizt við kennslu þessa, hafa til mín komið til kennslu alls aðeins 8 heyrnar- og málleysingjar. Þar af hafa þegar 3 lokið námi sínu, en 5 eru ennþá hjá mér. Eftir skýrslu, sem ég hefi nýlega fengið frá forstöðumanni hins konunglega heyrnar- og málleysingjaskóla í Khöfn, munu nú vera 11 börn heyrnar- og mállaus hér á landi, á þeim aldri, sem þau eiga að geta komizt í kennslu, og þar að auki sex, sem eru orðin nokkru eldri (um og yfir tvítugt), en sem bæði gætu og ættu sem allra fyrst að verða komið fyrir á einhverj- um kennslustað, áður en þau eldast meir.“ 29

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.