Kirkjuritið - 01.12.1959, Blaðsíða 40
470
KIKKJURITIÐ
ræturnar við að fræðast um slíkar öðlingsmanneskjur. Sagan
af spítalamálinu í Stykkishólmi hefir sögulegt gildi. Hún minn-
ir líka á mannúðarstarf Oscars Clausens á fleiri sviðum, eink-
um fangahjálp hans, sem seint mun lofuð að verðleikum. Þarna
eru einnig margar myndir, sem einar sér vekja margar hugs-
anir um íslenzka sveitahöfðingja og skörungskonur.
Merkir Borgfiröingar eftir Eirík Albertsson. Leiftur 1959.
Bók þessa hefir séra Eiríkur Albertsson dr. theol. tekið sam-
an um tíu Borgfirðinga, nákunnuga vini sína frá þeim árum,
þegar hann var prestur og skólastjóri þar í héraði. Flestir
þeirra voru ekki aðeins héraðshöfðingjar, heldur landskunnir
afburðamenn, svo sem Halldór Vilhjálmsson skólastjóri, Bjarni
Pétursson á Grund og Guðmundur Jónsson á Hvítárbakka.
Aðrir afreksmenn á sviði vísindanna, eins og Þórir Guðmunds-
son á Hvanneyri og Jón læknir Bjamason á Kleppjárnsreykj-
um. Rekur dr. Eiríkur ættir sumra allmikið og greinir glöggt
frá afkomendum þeirra. Til stuðnings og fyllingar lýsingunum
eru teknir upp kaflar úr líkræðum, sem hann hélt yfir mönn-
um þessum. Þótt bókin sé ekki stór að vöxtum, geymir hún þó
mikinn fróðleik og sannar það, sem alvitað er, að mikið mann-
val hefir löngum verið í hinu fagra og mikla Borgarfjarðar-
héraði frá landnámstíð til þessa dags.
Barnablaðið Æskan — útgefandi Stórstúka íslands — er nú
sextugt. Hefir það jafnan notið mikilla vinsælda, enda verið
mjög fjölbreytt að efni. í tilefni afmælisins var gefið út all-
mikið hátíðablað, sem flytur m. a. fjölmargar hughlýjar þakkir
og kveðjur frá mörgum fyrirmönnum þjóðarinnar. Kirkjuritið
óskar þess, að ,,Æskan“ dafni sem bezt. Sjaldan eða aldrei
hefir verið meiri nauðsyn á hollum og vönduðum barna- og
unglingablöðum en nú, og þetta blað hefir alltaf haft göfugt
markmið og verið vandað að efni og búningi.
Gangleri — rit Guðspekifélagsins — hefir ritinu borizt, 2.
hefti 33. árgangs. Það er jafnan læsilegt og til íhugunar. Af
efni þess má nefna: Nýir straumar í guðspeki eftir Sigvalda
Hjálmarsson, Undramaður í Tíbet, og Vegur guðspekinnar,
hvort tveggja eftir Grétar Fells.