Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.05.1964, Qupperneq 9

Kirkjuritið - 01.05.1964, Qupperneq 9
K.1RKJURITIÐ 199 hefur rækt lielgustu skyldurnar við barnið sitt: að leiða það inn í heim trúarinnar, að kenna því að þekkja Guð föður og frels- arann Jesúm Krist. Hver eru áhrif kirkjunnar hjá æsku Islands í dag? Er kristin- dómurinn það ríkjandi afl, er ákvarði hugðir og gerðir æskunn- ari súrdeigið, sem á að gagnsýra líf hennar allt? Ef ekki er liægt að svara þessari spurningu játandi, og því niiður bendir margt til þess, þá er það að verulegu leyti sök hinna eldri, þeirra, sem áttu að varða veginn og leiða æskuna til Jesú Krists. Og sterkar líkur eru þá fyrir því, að heimilin liafi Jnörg hver brugðist lielgum skyldum sínum. Hið góða fordæmi hefur of óvíða og of sjaldan verið gefið af uppalendunum. Ymiss vandamál æskufólks, vandamál sérstæð fyrir nútímann, eru blátt áfram sköpuð af ólilutvöndum mönnum, — mönnum, er notfæra sér þroska- og reynsluleysi æskunnar í ábataskyni. Hin siðlausa fjárgróðahyggja hins umfangsmikla skemmtana- reksturs er þarna ljósasta dæmið. 1 þessu sambandi mætti nefna s°rpritin alkunnu, þau er unga fólkið virðist svo afar ginkeypt fyrir. Htgefendur þeirra vekja gjarnan atliygli á þeim með djörfum myndum og kitlandi, æsandi lesefni. Er þá nokkuð að undra, þótt slíkt sálarfóður liafi sín áhrif og þau tæpast í hollara lagi? Yið þennan áleitna og ósvífna keppinaut verður kirkjan að elja hverju sinni, sem hún leitar íneð boðskap sinn á vit æsk- unnar. Hg þeir eru reyndar fleiri aðilarnir, sem keppa um hugi og tínia unga fólksins, reyndar sumir hverjir meinlausari, eins og hl dæmis forgöngumenn hinna fjölþættu íþróttaiðkana. Einnig löitast stjórnmálaflokkarnir ákveðið og áleitið, við að ná lil unga fólksins með boðskap sinn, og laða það til fylgis við liann. En segja má að næstum liver tómstund æskumannsins sé um- setin af háværum áróðurs og ginningamönnum skemmtilífsins. En hvernig er ábyrgðarskyn þessara rnanna, það væri fróðlegt að vita? í*egar kirkjan liyggst eignast ofurlítinn hluta af tómstundum •eskumannsins, verður hún að leggja til atlögu við þessa menn. Hg vissulega er þessi barátta eða samkeppni um hina ungu újöfn, það er svo ofur eðlilegt. Þarna á kirkjan svo mjög á bratt-

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.