Kirkjuritið - 01.05.1964, Blaðsíða 44
234
KIRKJUHITIÐ
þeirra kirkna, sem ekki teljast eiga
þessa röð' eru talin gild en „irregul-
ar“. Ritningin er talin hafa úrskurð-
arvald í trúarefnum og í trúarjátn-
ingu kirkjunnar og i vígslurituali
presta er talað um „the suffieienci
of tlie Holy Seriptures for salva-
tion“.
Samband ríkis og kirkju á Englandi
jelst í ejtirfarandi:
Konungurinn verður að tilheyra
ríkiskirkjunni, aftur á móti ekki ráð-
lierrar. Erkibiskuparnir krýna kon-
unginn, bænir eru fluttar í háðum
deildmn þingsins, og 26 hiskupar
sitja í efrideild þingsins. Réttindi
ríkisins eru þau, að forsætisráðlierra
tilnefnir alla hiskupa og dómpróf-
asta svo og í nokkur fleiri prests-
embætti. Þingið setur kirkjunni lög.
í enska skólakerfinu nýtur ríkis-
kirkjan engra sérréttinda. Flestir
skólar eru ríkisskólar. Kristindóms-
fræðsla er í skólunum, en ekki
liundin við framsetningu neinnar
kirkjudeildar. Ríkiskirkjan og frí-
kirkjurnar hafa sína eigin skóla, þar
sem kristindómur er kenndur með
sérkennum kirkjudeilda, og eru
þessir skólar studdir af ríkinu. Fáir
óska eftir skilnaði ríkis og kirkju,
en nokkuð stór hluti vill meiri
sjálfsstjórn til handa kirkjunni,
einkum með tilliti til lagasetninga
fyrir kirkjuna og áhrifa á tilnefn-
ingu hiskupa.
Anglikanska kirkjan hefur þrenns
konar embætti:
biskup, prest og djákna. Sérstök
vígsla tilheyrir hverju emliætti.
Djáknar hafa leyfi til þess að lesa
guðspjall í guðsþjónustum og til
þess að predika eftir ósk biskups og
lil þess að aðstoða við útdeilingu
sakramenta. Prestar liafa vald til
þess að predika og hafa um hönd
sakrainenti. Riskuparnir hafa auk
þess vald til þess að vígja og ferma.
Anglikanskir prestar meta mikils
sálusorgun hiskupa gagnvarl prest-
um sínum.
Erkiliiskupsdæmin eru tvö, Can-
terhury og York. Erkibiskupinn af
York her titilinn „Primate of Eng-
land“, en erskibiskupinn af Canter-
liury „Primate of all England“.
Biskupsdæmi eru 43 (30 í Canter-
liury og 13 í York). Auk þcss eru
vígslubiskupar til aðstoðar biskup-
um. Sóknarprestar eru 13000, auk
þess 45000 kapellánar og aðstoðar-
prestar. Tilnefning í prestsemliætti
skiptist þannig : Af krúnunni 900, af
biskupum 3000 og af öðrum stofn-
ununi kirkjunnar 2000, af háskólum
850, rúmum lielming embættanna
eða 7000 er ráðstafað af leikmönnum
ineð veitingarétt. (Heimild m. a.
KonfessionskunnskaiJ, eftir Einar
Molland, Land og Kirke, Oslo).
Deilt um kristindómsfræðslu
í skólum í Svíþjóð
Til skamms tíma liafa ekki verið
átök urn það hvort trúarleg fræðsla
skyldi vera i opinberum skólum i
Svíþjóð. Flestir gagnrýnendur kirkj-
unnar voru því sainmála, að nokkrar
kennslustundir í viku í trúarfræðum
væru æskilegar. Leiðtogar kirkjunn-
ar gerðu ekki kröfu til þess, að