Kirkjuritið - 01.07.1969, Qupperneq 14
Séra Óskar J. Þorláksson:
Heimilið kvatt
(Húskveðja 4. júní 1969)
„Að kvöldi dags skulu þér vita,
að Drottinn kemur. Að niorgni skulu þér
sjá dýrðina Drottins“.
Vér þekkjum fegurð morgunsins, þegar sólin rennur upp og
vekur til starfa. Þá er sem innri rödd hljómi oss í lijarta:
„1 sannleik hvar sein sólin skín
er sjálfur Guð að leita þín“.
Guð er lierra lífs og dauða. Hann er uppliafið og endirinn-
Þau orð, sem ég mæli hér við líkbörur hr. Ásmundar Guo-
mundssonar, fyrrv. biskups Islands, eru þakkar og kveðjuoi'ð
fyrir allt, sem liann liefur verið ástvinum sínum á liðnum ævl"
degi. Þær minningar, sem hér skipta mestu máli eru minningar
heimilisins, minningar um ástkæran eignmann, föður, tengda-
föður og afa, hróður og vin.
Ég liugsa fyrst um hrúðkaupsdag þeirra frú Steinunnar og
Ásniundar, hinn 27. júní 1915. Þá voru bjartir vordagar, eins
og nú, þá var einna lengstur sólargangur á Islandi. Það var
táknrænt fyrir framtíð þeirra.
Þá lá leið liinna ungu prestshjóna vestur í Stykkishóhn, þaI
sem þau stofnuðu sitt fyrsta heimili, og þar sem þau a*111
síðan heima í nokkur ár.
Oft minntist séra Ásmundur á prestsskaparár sín vestur 1
Stykkishólmi, þá reynslu, sem hann öðlaðist þar. Hlýhugur
hans til fólksins þar duldist engum.