Kirkjuritið - 01.07.1969, Blaðsíða 46

Kirkjuritið - 01.07.1969, Blaðsíða 46
KIRKJURITIÐ 284 slað, sem börnin eifiiim. Við höfum skyldur við börnin okkar i fleiru en því, að gefa þeim fæði og klæði. Sú bæn, sem okkur ber að biðja með börnunum okkar, verður ekki falin skóluni eða fjölmiðlunartækjum. Hver og einn, sem nýtur þeirrar bamingju að ala upp þjóðfélagsborgara, verður að vera a- byrgur fyrir því, að það bamingjulilutskipti megi takast slysa- lítið. Þessa vordaga búum við okkur undir, að fagna aldarfjórð- ungsafmæli lýðveldisins og þúsundir æskufólks bíða þess, að fá eittbvert nýtilegt starf að vinna. Allir eru sammála um, að nauðsynlegt sé, að skapa þessum inikla fjölda ungra stúlkna og drengja sumarvinnu, og flestir sjá, að auðvelt er að finna verk- efni. Það eitt skortir, að nægilegt fjármagn sé fyrir liendi, til að greiða kostnað, sem óbjákvæmilega yrði slíkri unglingavinnu samfara. Við kaupum skemmtistaði fyrir þetta æskufólk, svo það geti baft afþreyingu í tómstundum. Kostum íþróttamanu- virki, svo það geti eflt líkamsbreysti. Byggjum árlega marga nýja skóla til þess, að það geti notið menntunar. Komum upp leikvöllum, svo umferð götunnar verði þeim ekki að fjörtjóni- Allt er gert, sem talið er nauðsynlegt, til þess að börnum okkar megi vegna vel í okkar ágæta þjóðfélagi, en þegar finua þarf þeim nýtileg störf að vinna á bjarræðistíma íslenzks at- vinnulífs, J)á eru fjárhirzlur tómar, meðal annars vegna l>esS bve miklu fé úr liinuni almennu sjóðum okkar, er varið til þess eins, að bæta þann skaða, sem Jiessi börn okkar hafa valdið þjóðfélagi sínu“. =SSf= Gömul vísa Heyrðu snauðra harmaraust, hjálpaðu sjúkra pínutn, vertu öllum aunium traust eftir kröftum þínum.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.