Kirkjuritið - 01.07.1969, Blaðsíða 40

Kirkjuritið - 01.07.1969, Blaðsíða 40
Gunnar Árnason: Pistlar Gœfuleitin Hugsæisstefnan (rómantíkin) er löngu liðin undir lok. TaliJ1 til barnaskapar á þessari kjamorkuöld. Orðtakið: „Islendingar viljum vér allir vera“, munu margir ætla merki heimskulegs oflátungsliáttar heimalningsins. Það’ koin upp eftir að fólk hafði flúið liéðan unnvörpum á liörðum árum til að leita gulh og grænna skóga í Ameríku. Sá flótti vakti metnaS þeirra, sem eftir sátn og herti á sókn þeirra í sjálfstæðisbaráttunni? sem lilaut góðan endi fyrr en varði. Nú er hér eitt af velferðarríkjunum. En alsælir eruin við ekki. Og nokkuð brestur á ánægjuna, einnig í brjósti æsku- fólksins og þeirra, sem standa í blóma lífsins. Talsvert liefur á því borið að menn hugsuðu sér gott til glóðarinnar ef þeim tækist að komast úr landi og elta uppi gæfuna vestan liafs eða austan, og þó einkum suður í Ástralíu. Mér varð liugsað til þessa, þegar vitur maður og lífsreyndur spurði mig á dögunum, livort ég liefði lesið Herodot, gríska sagnameistarann. Ég varð því miður að neita því. Þá greip bann síðasta bindi enskrar þýðingar á verkum hans og benti mér á að lesa lok níundu bókar. Við fórum umræðulaust út 1 aðra sálma á eftir, en ég festi mér staðinn í minni og leitaði liann nýlega aftur uppi. Ég er þakklátur fyrir ábendingun11 og finnst ekki úr vegi að fleiri lesi fyrmefndar línur. Vona 0® efnið komist til skila í þýðingunni. Herodot er að ræða um persneskan herforingja í liði Xei'xc?- Hafði hann svívirt musterið í Sestsu í Þrakíu og því verið krossfestur af Grikkjum. Odrengur þessi „var sonarsonur Artembaresar sem lagð1 Persum Jífsreglur, er þeir síðan háru undir Kýrus; þetta va1 efni þeirra: „1 Ijósi þess að Seifur hefur látið Persum og þ®r’ Kýrus, auðnast að undiroka Astyages, skulum vér nú flytja úr þessu litla og harðbýla landi voru og taka oss bólfeslu í öðnU

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.