Kirkjuritið - 01.05.1970, Síða 32
222
KIRKJUIUTIÐ
inu. Biblían segir frá styrjöldum, grimmd og eyðileggingu, og
saga kristninnar segir frá grimmilegum ofsóknum, sem gengu
yfir kristna menn og alkunnar eru trúarbragðastyrjaldir mið-
aldanna, og styrjaldir okkar tíma, sem átl hafa rætur sínar
í ofstækisfullri valdabaráttu og ólíkum stjórnmálaviðhorfum.
Ekkert af þessu er í samræmi við þann boðskap og þau
lífssannindi, sem felast í fagnaðarerindi Jesú. Við verðum að
játa það, að hinn kristni heimur er ekki fullkominn, þó að
við séum innilega þakklát fyrir margt, sem telja má beina
ávexti þess fagnaðarerindis, sem Jesús Kristur flutli.
II.
Kirkjan og lieimsfriðurinn eru bugtök, sem eru rnjög nátengd
í hugum kristinna manna, þrátt fyrir mismunandi skilning
jieirra á sannindum trúarinnar.
Það eru þó ekki allir, sem óska eftir friði og telja að barátta
og styrjaldir Iiljóti að lialda áfram meðan mannkynið lifir a
Jiessari jörð og séu jafnvel nauðsynlegar, til þess að J)oka þvi
áfram á framfarabrautinni. Sagan segir frá mörgum valda-
gráðugum harðstjórum, sem beiltu vopnavaldi, til þess að
auka áhrif sín, en oftast fylgdi dauði og ofbeldi í fótspor
Jieirra. Öld sú, sem við lifum nú á hefur ekki verið nein friðar-
öld. Margir muna enn árin 1914—1918, en J)ó enn betur árin
1939—1945. Eftir þessar miklu styrjaldir varð friðarlnigsjónin
enn ákveðnari. Þjóðabandalagið var stofnað eftir fyrri lieinis-
styrjöld og Sameinuðu þjóðirnar eftir þá síðari. Þó að Þjóða-
bandalagið liafi brugðist vonum manna, })á má segja, að Jæssi
samtök Iiafi komið miklu góðu til vegar, og þá ekki sízt hinar
Sameinuðu ])jóðir, sem án efa liafa, til þessa, komið í veg
fyrir þriðju heimsstyrjöldina, livað sem það verður lengi.
Víða um lieim standa púðurtunnur fullar og ef eldur er að
þeim borinn getur illa farið. Það er því vissulega mikil liætta,
sem vofir yfir beiminum í dag.
Allir eru sammála um það, að skilningur og alþjóðlegt sam-
starf sé nauðsynlegra og þýðingarmeira nú en nokkru sinnt
áður.
Hvað getur kirkjan gert fyrir beimsfriðinn? Með |)ví að
boða fagnaðarerindi Jesú Krists, efla trú og siðgæði vinnui
kirkjan beint og óbeint fyrir lieimsfriðinn. Þessir andlegu