Kirkjuritið - 01.04.1975, Síða 34

Kirkjuritið - 01.04.1975, Síða 34
Runnurinn logar, en brennur þó ekki. Einkasonur Guðs leggur líknarhönd á höfuð lesandanum. í orði sínu hefur Guð opinberast þessum manni. Rétt er að leggja áherzlu á þá al- kunnu staðreynd, að þau umskipti, sem ég hér hef vikið að, verða síður en svo ætíð með sama hætti. Til eru menn, sem upplifa nýja tilveru í skjótri svipan. Aðrir eiga í áralangri baráttu, en síðar koma umskiptin í skyndingu. Enn aðrir glíma lengi og sjá e. t. v. fyrst í stað reykinn einan, en þá glóðir, sem smám saman lifna, unz runnur- inn allur stendur í loga. En hvað sem leiðinni líður er hitt víst, að niðurstaðan verður hin sama: Guð opinberar sig í orði sínu, og ein- staklingurinn öðlast nýja tilveru. Þessi nýja tilvera er ekki lífsviðhorf eða skoðun eða álit né neitt í þá átt. Hún ristir dýpra en svo. Persónulífið allt hefur tekið nýja stefnu, — öðlazt til- gang, markmið, — ásamt óumræði- legri birtu.i) Nú skýtur einhver utanaðkomandi aðili upp kollinum og véfengir það, sem hinn fyrrnefndi trúir á, véfengir t. d. raunveru (raunverulega tilvist) hins upprisna Drottins Jesú Krists. Slíkum efasemdum er ekki unnt að svara með raunvísindalegum hætti eða með rökhyggju. Rétta svarið er per- sónulegur vitnisburður. Sá vitnisburður felst í tilvísun til þess, að hinn upp- risni er grundvallarstaðreynd minnar eigin tilveru. ,,Sjálfur lifi ég ekki fram- ar, heldur lifir Kristur i mér.“ Þessi 1) Hér væri að sjálfsögðu ástæða til að fjalla sérstaklega um Anda Guðs. En einhvers staðar verður að setja spjalli þessu takmörk. ,,tilverustaðreynd“ (existentiel virkelig- hed) verður með engu móti ,,afsönn- uð“ eða afmáð af nokkrum utanað- komandi aðiia, — ekki fremur en hinn trúaði getur þröngvað 'henni upp á þann, sem véfengir. ,,Tilverustaðreynd“ er miklum mun þýðingarmeiri en nokkur „hlutlægur veruleiki,“ hversu auðvelt sem það kann að vera að færa sönnur á tilvist hins síðar nefnda með rannsókn eða rökum. Eiginmaður getur hæglega gef- ið ótal upplýsingar um konu sína, um hæð hennar, þyngd, augnalit og hára o. s. frv. Allt eru þetta hlutlægar upp- lýsingar sem auðvelt er að ganga úr skugga um með rannsókn. En þessar upplýsingar skipta eiginmanninn engu, ef þær eru bornar saman við hitt, að hann elskar einmitt þessa konu. Raun- vera ástar hans til hennar verður ekki ,,sönnuð“ á sama hátt og skýrsla hans um hæð hennar, þyngd og lit. Eigi að síður er ástin sú tilverustaðreynd, sem öll afstaða hans til þessarar konu byggist á. Og hún er svo miklu þýð- ingarmeiri en allt hitt, að þar á er ekki stigsmunur, heldur eðlis. E. t. v. hljómar það undarlega, sem ég nú hyggst segja: i) Biblian er ekki opinberun Guðs. Ekki sjálfkrafa. Ekki á sama hátt og t. d. „Enska öldin“ eftif Björn Þorsteinsson sannanlega fjallai’ um atburði 15. aldar á isiandi. — 2) Biblían ER opinberun Guðs, —' þeim sem lesa hana og finna þar tH- verugrundvöii að fóta sig á. Þeim er hún lifandi orð. Öðrum dauður bókstaf- ur. Opinberunin er sem fyrr greinir tvf- bent: Hinn huldi Guð gengur fram á foldu, — í einum manni. Aðeins eitt ritsafn greinir frá þessum atburði. En
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.