Kirkjuritið - 01.04.1975, Page 45

Kirkjuritið - 01.04.1975, Page 45
' síðasta Kirkjuriti og valdið hefur margvíslegum geðshræringum síðan. Sá, sem situr í hópnum umhverfis mið- ilinn og bíður fregna af framliSnum, Qengur hann krókalaust á fund Krists? N®gir honum trúin á hinn upprisna {relsara? Hver er tilverugrundvðllur hans? Og prestar, sem leggja blessun sína yfir þetta athæfi, — eru þeir trúir þeim Drottni Jesú Kristi, er býður þeim hjálpræðið fyrir trúna eina saman? Hver er tilverugrundvöllur þeirra? Er það kannski til of mikils mælzt aS biðja um svör við þessum spurn- ingum? Eru spurningarnar of skýrar hl þess að unnt sé að svara þeim útúr- snúningslaust? EHegar prestur á borð við séra Þóri Stephensen, sem staðhæfir, að kær- leiksríkur heiðingi geti „komizt miklu næf Guði en skírður, kristinn maður, Sem lítt hirðir um kærleikann“! — ^æri það til of mikils mælzt að biðja Þennan klerk að skýra litlu nánar af- stöðu sína til Krists, — ásamt afstöðu sinni til boðunarinnar um hjálpræðið fyrir eina saman trúna á hann? Væri það óhóf að spyrja, hvers konar kvik- syndi sá maður er kominn út í, sem ^sllar sig kristinn prest, en telur þó trúna á Krist — hann, sem einn er Guð, — skipta minna máli en góð- semi mennskra manna? Hér hygg ég, að komið sé að veiga- wikilli gjá, sem I raun liggur nú á dögum um fylkingu íslenzkra guSfræð- m9a þvera: Annars vegar eru þeir, Sem trúa á Krist og hann El NAN. Hins vegar eru þeir, sem telja sig trúa á Krist O G eitthvaS annaS. Ann- ars vegar erRÉTTTRÚ, — hrein og ómenguS evangelisk-lúthersk trú. Hins vegar er B L E N D I N N átrún- aQUr, — óljós og samsettur af sundur- leitum fyrirbærum. Ætíð verða einhverjir til þess að reyna að brúa slíkar gjár, — með þokukenndum hugsunarhætti og mark- lausri velvild. Það er óhultast að geta labbað yfir brýrnar og látið sem eng- in sé gjáin. Brúarsmiðir ýmsir hafa gert mikið úr þeim hörðu orðum, sem ég beitti í hinni fyrstu grein minni. Almennt virðist það vera gleymt, að jafnvel Kristur átti það til að kalla menn hræsnara og nöðruafkvæmi, já jafnvel staðhæfa það, að sumir and- stæðinga hans ættu djöfulinn að föður. Hann sagði nefnilega sannleikann, — óhikað. Hann sprengdi allar brýr af öllum gjám. Sumar gjánna hafa aldrei verið brúaðar síðan. Ég er ekki viss um, að Kristur telji sér sérlega vel þjónað af þeim mönn- um, er byggja vilja brýr yfir gjána milli trúarinnar á hann og hjáguðadýrkunar ýmiss konar. Miðilsfundir hafa „gefið ótal mörg- um efasemdamönnum þessa dýrmætu eign, öryggið um, að látinn lifir. Þeir hafa þá líka gefið svo mikilsverða huggun, að slíkt verður ekki metið að verðleikum." Þannig talar séra Þórir Stephensen. Þannig talar kristinn aóm- kirkjuprestur á íslandi. Og enn spyr ég: Á kristinn prédikari sér það mark- mið eitt að veita efasemdamönnum öryggi og huggun? Gildir einu, hvaðan sú huggun kemur? Úr því að spíritísk huggun getur komið í stað trúar á Krist hinn upprisna, er þá ekki búdd- hísk huggun jafngóð, — eða islömsk? Svarið við þessu hlýtur að verða já- 43

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.