Kirkjuritið - 01.04.1975, Page 65
JÖNAS ÞÓRISSON, kristniboði:
Langþráðu
marhi
náð
°nas Þórisson, kristniboði í Konsó í
ÞíóPiu, ritaði kristniboðsvinum á ís-
andi bréf 2. marz s. I. Það er birt í
! tbl. Bjarma 1975. Kirkjuritið fékk
til að birta hluta úr þessu bréfi,
ar eð þa5 á erindi við íslendinga:
1 dag er mikill hátíðisdagur hér í
þ°nsó- Nýja kirkjan hefur verið vígð.
a er dagur, sem fyrirrennarar okk-
’ ^ristniboðsvinir og söfnuðurinn,
lengi hlakkað til. Mikill fögnuður
I' ÞJa þeim mikla fjölda, er lagði
V\Q S'na Þ'n9a® ti' taka þátt í há-
i^^ðsþjónustunni og vígsluathöfn-
Siðustu dagana hefur verið í nógu
að snúast við alls konar undirbúning.
Nýju kirkjubekkina þurfti að setja sam-
an, mála og lakka. Þetta var mikil
vinna, en við vorum svo heppin að hafa
hér enn þá einn af smiðunum, sem
unnið hafa við kirkjubygginguna. Hann
tók þetta verk að sér og leysti það vel
af hendi ásamt daglaunamönnunum
okkar, Kambero og Gúmatsjó. Einnig
þurfti að mála allt í hólf og gólf. Þótt
við höfum haft samkomur í kirkjunni
nú á fjórða mánuð, höfum við látið
sitja á hakanum að mála, þar sem við
vildum hafa allt fágað og prýtt á sjálf-
an vígsludaginn.-----------
Er ég leit yfir kirkjuna til að sjá,
hvort allt væri nú eins og það ætti að
vera, varð mér hugsað til ykkar, kristni-
boðsvinir, sem með trúfesti og fórnum
hafið gert þetta mögulegt. Ef Guð lof-
ar, munu margir koma hingað um
ókomna framtíð og fá að heyra fagn-
aðarerindið um frelsarann okkar Jes-
úm Krist. Og til Biblíuskólans, sem er
til húsa í nýju kirkjunni, þangað munu
margir ungir Konsóbúar koma til að
fræðast og styrkjast í trú sinni. Já, eitt
er víst: Guð mun blessa starfið, og hin
nýja aðstaða er ómetanleg fyrir allt
starfið.---------
í morgun fór ég niður að kirkju til
að setja upp flögg fyrir utan kirkjuna.
Þá þegar voru margir farnir að bíða
eftir því, að kirkjudyrnar yrðu opnaðar
og þeir fengju að fara inn. Já, það er
oft gaman að virða fyrir sér fólk, sem
kemur í fyrsta sinn inn í kirkjuna.
Flestir hafa aldrei fyrr séð annað eins
hús, þar sem eins hátt er til lofts og
vítt til veggja. Þeir góna upp í loftið
og aftur og fram og hlæja svo að öllu
saman.
63