Fríkirkjan - 01.03.1902, Blaðsíða 2
34
Þú veizt, hann vinur er,
sem vill þig sælan gera;
þú veizt, að honum hjá
er hólpnum gott að vera.
IDó grátleg sé þin synd
og sálar margföld neyð,
treyst honum, þér mun þá
frá þrautum greiðast leið.
Hann segir: „Sjá, eg kem
til Zíons þig að )eiða.“
Um hennar perlu hlið
hans hjörð á vegu greiða.
í Zion gljái gulls
á götu hverri er;
þar drottinn fyrst til fulls
sinn frið mun veita þér. —
Um að breyta bibliunni.
(í'yrirlestur eptir: dr. D. Witt Talmage.)
,, O/7 taki nokkur af orðum þessarar spádómsbókar, þá mun
guð af honum taka hans lilutdeild i lífstrénu og borginni helgu. .“
(Opb. 22, 19.)
Hinn guðinnblásni höfundur sá það fyrir fram, að þeir tím-
ar mundu koma, þá er þjófar mundu brjótast inn til að stela
ýmsum pörtum biblíunnar, þá er einn mundi gjöra innbrot
hér og annar þar. En á eptir slikum glæpum mun koma
hræðileg hegning, þvi að hin tilvitnuðu orð segja á mjög á-
kveðinn hátt, að hlið himinsins munu að eilífu verða lokuð
fyrir slíkurc helgidóms-i-æningjum. Það er þess vegna mjög
ábyrgðarmikið að ráðást í, að gjöra nokkra breytingu á biblíunni.
Frá ræðustóli í New-York hefur fyrir skömmu sú hugsun
verið látin í ljósi, að það þurfi að hreinsa ritninguna, með því
að nokkrir hlutar heimar séu óhæfir til lesturs og aðrir eigi
nægilega áreiðanlegir.