Prestafélagsritið - 01.01.1925, Síða 10
Prestaféiagsritið. Kjarni kristindómsins og umbúðir.
5
trúmálin og haft áhuga á þeim, birtist þó í þeim misskilinn
áhugi, sem hefir unnið kristindóminum mikið ógagn, beint og
óbeint.
Áhuginn hefir á þann hátt beinst út á rangar brautir.
Kristnir menn hafa með þessu eytt kröftum sínum í baráttu
gegn þeim mönnum, er áttu að vera samverkamenn þeirra,—
en um leið hafa hinir raunverulegu óvinir kristindómsins, laus-
ungar- og léttúðarmenn og trúleysingjar, að miklu leyti gleymst
eða ekki verið hægt að sinna þeim með þeim krafti, sem ella
myndi verið hafa, og vegna þessa heldur ekki verið unt að
leiðbeina og hjálpa hinum mörgu, sem á einhvern hátt hafa
verið nauðulega staddir og annars hefðu getað notið öflugri
aðstoðar kirkjunnar manna.
Af þessu er bert, að það er ekki Iítilsvert, að kunna að
gjöra réttan mun á kjarna og aukaatriðum, þegar um kristin-
dómsmálin er að ræða.
Þetta eru fjölda manns víðsvegar um kristinn heim farnir
að sjá og sannfærast um. Þaðan er friðar- og samvinnuhreyf-
ingin innan kirkjudeildanna runnin. Sú hreyfing er fegursti
vottur þess, að tímarnir eru að breytast í þessu tilliti og fjöldi
manna er farinn að skilja, að þeir, sem eru sammála um það,
sem telja ber til kjarna kristindómsins, mega ekki skorast
undan samvinnu við aðra kristna menn, þótt margt beri á
milli og ólíkt sé á margt litið af því, er réttilega telst til auka-
atriða eða umbúða kristindómsmálanna.
Reynsla kristilegrar kirkju um allar liðnar aldir færir mönn-
um heim sanninn um, hve nauðsynlegt sé, að kunna að gjöra
greinarmun á kjarna kristindómsins og umbúðum. Hér er því
um mikilsvert atriði að ræða, sem vert er að rannsaka og
gjöra sér sem glegsta grein fyrir.
Hver er þá kjarni kristindómsins?
Til þess að geta svarað þeirri spurningu rétt, er nauðsyn-
legt að gjöra sér ljóst, að um kristindóm má tala í tvenns-
konar merkingu. Annars vegar er kristindómurinn þekking,